Málfríður Guðmundsdóttir

Skíðagöngusíða Sævars Birgissonar

Ný krækja hefur bæst við í dálkinn hér til hægri,  Sævar Birgisson – leiðin til Sochi sem er að finna undir fyrirsögninni „2. Skíðaganga á Íslandi“. Þarna birtir Sævar æfingadagbók sína og auk þess margs konar fróðleik sem getur nýst öðrum við æfingar. Þetta er stórglæsilegur vefur og er Sævari hér með óskað til hamingju með

Skíðagöngusíða Sævars Birgissonar Read More »

Samæfing og fjölskyldumót um verslunarmannahelgina

Samkvæmt áreiðanlegum fréttum verður samæfing og fjölskyldumót um verslunarmannahelgina og að þessu sinni á Hólmavík. Allt skíðagöngufólk er hvatt til að skoða möguleika á að taka þátt og mæta með alla fjölskylduna en æfingar verða fyrir alla getu- og aldursflokka. Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt um leið og slíkt berst. Þóroddur F. e.s. ég

Samæfing og fjölskyldumót um verslunarmannahelgina Read More »

Opin landsliðsæfing á Akureyri 14.-17. júní

Opin landsliðsæfing í skíðagöngu verður haldin á Akureyri 14.-17. júní næstkomandi. Linus Davidsson er nú að koma til landsins og mun stjórna æfingunni. A-landslið Íslands mun taka þátt í æfingunni auk þess sem hún er opin fyrir iðkendur 13 ára og eldri. Stærsta verkefni á vegum SKÍ fyrir yngri iðkendur á komandi vetri er án

Opin landsliðsæfing á Akureyri 14.-17. júní Read More »

Um Íslandsgönguna 2012

Nú er öllum mótum Íslandsgöngunnar 2012 lokið en henni lauk að vanda með glæsilegri Fossavatnsgöngu. Þótt brennandi áhugi skíagöngumanna á Íslandsgöngunni sé ekki alltaf augljós eru áreiðanlega ýmsir sem hefðu gaman af að velta fyrir sér úrslitunum. Ekkert hefur enn birst um þau á vefsíðu Íslandsgöngunnar, síðasta hreyfing þar er frá því í haust þegar

Um Íslandsgönguna 2012 Read More »

Uppskeruhátíð í Bláfjöllum

Ullungar héldu uppskeruhátíð vetarins við Þóroddsstaði í Bláfjöllum sunnudaginn 6. maí og fögnuðu unnum afrekum. Hátíðarhöldin hófust með boðgöngu þar sem fjórar sveitir öttu kappi. Íþróttaafrekum var ekki þar með lokið því þá tók við keppnin um Ullarásinn en þar skyldu keppendur ýta sér upp með stólalyftunni í Suðurgili og hlaut sá nafnbótina sem hæst

Uppskeruhátíð í Bláfjöllum Read More »

Lokahátíð Ullunga í dag, 6. maí, kl.12:00

Lokahátíð Ullunga verður í Bláfjöllum í dag og þurfa allir að mæta fyrir kl 12:00 en þá verður ræst í leika dagsins en að þeim loknum verða grillaðar pylsur handa öllum. Í fyrradag var lagt um 5 km spor sem áreiðalega hefur haldist nokkuð gott ef vélsleðamenn hafa ekki ekið meira um það en búið

Lokahátíð Ullunga í dag, 6. maí, kl.12:00 Read More »