Barna- og unglingastarf

Veturinn 2022-2023 verða reglulegar æfingar fyrir börn og unglinga á vegum Ulls undir stjórn Steven Gromatka þjálfara.

Við viljum endilega fá fleiri krakka í hópinn og er öllum velkomið að koma og prófa. Endilega hafið samband við okkur ef þið hafið áhuga í gegnum netfangið krakkaullur@gmail.com. Einnig má hringja í 848-8691.

Skráning er í gegnum Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/ullur/1

Hægt er að fá lánuð hjólaskíði til að prófa æfingar, en þá þarf að hafa samband við okkur fyrirfram til að skipuleggja það.

Krökkunum er skipt í þrjá aldurshópa:

  • 6-8 ára (2016-2014): Æfingar hefjast eftir áramót, einu sinni í viku um helgar. Æfingatímabilið er frá 8. janúar til lok apríl, á sunnudögum kl. 12.
  • 9-11 ára (2013-2011): Æfingar tvisvar í viku. Fimmtudagar kl. 18 og sunnudagar kl. 11. 
  • 12 ára og eldri (2010 og eldri): Æfingar 3 í viku með þjálfara og æfingaplan fyrir eigin æfingar þess á milli. Þriðjudagar kl. 18, fimmtudagar kl. 18 og sunnudagar kl. 11.

Í haust verða æfingar á virkum dögum í Elliðaárdalnum, hisst fyrir utan Hitt húsið. Um helgar eru æfingar á höfuðborgarsvæðinu eða Heiðmörk. Þegar snjórinn lætur sjá sig færast æfingar upp í Bláfjöll eða Heiðmörk. Æfingaáætlun fyrir hverja viku auk staðsetningar á æfingum er birt í byrjun vikunnar. Þar sem staðsetning æfinga er breytileg þá er tilkynnt um staðsetningu fyrir hverja æfingu á facebook síðu hópsins.

Nokkrir punktar varðandi æfingar:

  • Mæta þarf tímanlega á æfingar, æfingin byrjar á settum tíma.
  • Mæta með vatnsbrúsa í belti á æfinguna.
  • Börnin þurfa að vera klædd eftir veðri:
    • Góð innanundirföt, skíðabuxur eða utanyfirbuxur og jakki sem heftir ekki hreyfingar. Buff fyrir háls og andlit, góðir vettlingar og húfa. Hafið samt í huga að manni hitnar fljótt við skíðagöngu þannig að gott er að klæða sig samt ekki of mikið. Athugið samt að oft er töluvert kaldara uppi í Bláfjöllum en í bænum þannig að takið mið af veðrinu uppi í Bláfjöllum.
  • Vera með úlpu eða önnur aukaföt til að fara í þegar æfingin er búin.
  • Vera með eitthvað smá nesti til að borða eftir æfingu

Barnastarfið eins og annað starf í Ulli er borið uppi af sjálfboðaliðastarfi. Fyrir utan þjálfara sem sjá um þjálfun á æfingum þá sjá foreldrar um allt barnastarfið og er því mikilvægt að allir taki þátt svo hægt sé að skipta með okkur verkum. Þegar farið er í keppnisferðir sjá foreldrar um að allt sem við kemur sínu barni. Að komast á staðinn, gistingu og að undirbúa skíðin. Það er um að gera fyrir foreldra sem eru nýir í skíðagöngu að leita til reyndari aðila í hópnum til að fá kennslu og ráð í umhirðu skíðanna og öðru.

Æfingagjöld fyrir árið eru:

  • 6-8 ára: 15.000 kr.
  • 9-11 ára: 40.000 kr. (vorönn á 30.000kr)
  • 12 ára og eldri: 50.000 kr