Æfingahópur Ullar veturinn 2026-2027
Markmið hópsins er að leyfa öllum aldurshópum að taka þátt í skíðaiðkun hjá Ulli, kynna hvað skíðaiðkun er góð hreyfing. Hópurinn er ætlaður 18 ára og eldri.
Yfirjálfari: Kristrún Guðnadóttir
Þjálfarari: Kristján Sigurðsson, Yngvi Guðmundsson og Mikael Karlsson
Æfingatímar:
Þriðjudagar kl. 17.30 (tækniæfing hefst kl. 18)
Fimmtudagar kl. 17.30 (interval hefst kl 18)
Laugardagar kl. 10
Æfingahópur Ullar er fyrir alla sem langar að stunda skíðagöngu, bæði þá sem stefna á að sigra sjálfan sig og aðra í keppnum og einnig þá sem hafa það að meginmarkmiði að njóta þess að stunda skíðagöngu í góðum félagsskap. Æfingar eru settar upp þannig að þær henti bæði þeim eru lengra komnir og þeim sem eru tiltölulega nýbyrjaðir í sportinu.
Gert er ráð fyrir að hópnum sé skipt upp ef þess þarf eftir getustigi/áhuga.
Æfingavikan er að jafnaði:
Þriðjudagar : Tækniæfing. Ýmist er hópurinn saman að gera tækniæfingar og/eða fara í tæknileiðsögn. Við erum með nokkra tækniþjálfara sem skiptast á að stýra þessum æfingum, Kristrún Guðnadóttir, Ólafur Th Árnason, Óskar Jakobsson og Mikael Karlsson.
Fimmtudagar : Interval. Stýrt af þjálfurum skv. Leiðbeiningum frá Kristrúnu.
Laugardagar : Langtur. Stýrt af þjálfurum skv. Leiðbeiningum frá Kristrúnu.
Hjólaskíði – Stafahlaup / Stafaganga – Skíðaganga
Skíðaganga.
Ef tækifæri er til að fara á skíði er alltaf farið á skíði. Þá er ýmist farið í Bláfjöll, Hólmsheiði eða Heiðmörk.
Hjólaskíði og stafahlaup/stafaganga
Á meðan færi er til verða æfingar alltaf á hjólaskíðum.
Þegar ekki er hægt að fara á hjólaskíði verður æfingum fækkað, en við munum taka stafagöngu á fell eða hlaup. Einnig verða stundum gerðar verða æfingar á hlaupa/gönguæfingum sem undirbúningur og styrkur fyrir skíðagöngu.
Gefin verður út æfingaáætlun fyrir hópinn sem miðar að því að undirbúa iðkendur fyrir Íslandsgöngurnar, sem og aðrar göngur sem stefnt er að í vetur. Fyrsta Íslandsgangan er um miðjan janúar á Akureyri.
Stefnt er að því að hópurinn fari saman í amk einhverjar Íslandsgöngur, nánari skipulagning fyrir það kemur síðar.
Athugið að skíðaganga er eðli málsins samkvæmt háð snjóalögum og veðri. Mikilvægt er að iðkendur fylgist vel með staðsetningu og upplýsingum um æfingar. Staðsetning liggur oft ekki fyrir fyrr en á síðustu stundu (fyrir æfingar á snjó) og eins hvort við getum verið á hjólaskíðum eða hvort við verðum á hlaupaskóm. Allar upplýsingar og tilkynningar eru á Abler.
Stefnt er að því að vera með æfingar á þessum skipulögðu tímum, en þegar æfingar eru komnar á snjó gæti fyrirkomulagið hliðrast á milli æfingadaga til að nýta tækifærin sem hægt er að komast á skíði.
Hópurinn æfir saman allt árið en einnig er hægt að skrá einungis á vetrarönn.
Skráning er á Abler en þangað inn koma allar upplýsingar um æfingar.
Í ágúst verða æfingar fríar fyrir alla sem vilja koma og prófa. Settur verður upp sér skráningarhlekkur fyrir ágúst fyrir þá sem vilja prófa.
https://www.ab/ler.io/shop/ullur
Árgjald (ágúst til júní) : 50.000kr
Vetrarönn (á meðan það er snjór – nóvember til apríl) : 40.000kr
Árgjald í Ull er innifalið í æfingagjöldum.
Aðgangur að skíðagöngusvæði í Bláfjöllum er ekki innifalið í æfingagjöldum.
Vetrardagskrá – ATH EKKI UPPFÆRT FYRIR 26-27:
Ágúst – Frír prufumánuður
7.september – Hjólaskíðamót Ullar
15.janúar – Súlur vertical (Hermannsgangan)
14.feb – Fjarðargangan
7.mars – Strandagangan
20. Mars – Bláfjallagangan
18. Apríl – Fossavatnsgangan