Málfríður Guðmundsdóttir

Æfing fyrir börn og unglinga kl. 13 á laugardag í Bláfjöllum

Börn og unglingar eru boðin velkomin á æfingu kl. 13 á laugardag. Við verðum u.þ.b. 2 tíma og fínt að koma með eitthvað nesti, því við stoppum aðeins í skálanum á miðri æfingu. Ég lofa miklu fjöri og alveg öruggt að þeim sem mæta mun ekki leiðast. Þeir sem þetta lesa ættu endilega að hvetja

Æfing fyrir börn og unglinga kl. 13 á laugardag í Bláfjöllum Read More »

Fjarðargangan 25. febrúar 2012

Skíðafélag Ólafsfjarðar endurvekur nú Fjarðargönguna en hún er hluti af Íslandsgöngunni. Gangan fer fram laugardaginn 25.febrúar og hefst kl. 13:00. Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5km, 10km og 20 km. Eftir keppni er svo verðlaunaafhending og kaffiveitingar í skíðaskálanum í Tindaöxl. Nánari upplýsingar, svo sem um keppnisgjald og skráningu, má sjá á myndinni hér

Fjarðargangan 25. febrúar 2012 Read More »

Myndir?

Í dálkinum hér til hægri má smella á myndakrækju sem sækir myndasafn félagsins en þar má finna margar ágætar myndir sem tengjast starfsemi félagsins á liðnum árum. Þarna hefur hins vegar lítið bæst við í vetur. Nýjasta mappan er frá hjólaskíðamóti sem Ullur stóð fyrir í september og eina myndin, sem vefnum hefur borist síðan

Myndir? Read More »

Afsláttar- og ráðgjafarkvöld hjá ZO-ON Iceland

Vefnum hefur borist póstur frá Örvari J. Arnarssyni, verslunarstjóra ZO-ON Iceland, sem framleiðir og selur útivistarfatnað, þar sem skíðafólki er boðið að koma í verslun ZO-ON Iceland í Kringlunni (gegnt Zara og Bónus) miðvikudagskvöldið 15. febrúar 2012 kl. 19 til 21 og fá faglega ráðgjöf um val á skíða- og útivistarfatnaði. Einnig er í boði

Afsláttar- og ráðgjafarkvöld hjá ZO-ON Iceland Read More »

Íslandsgangan: Hermannsgangan á Akureyri 11. febrúar

Vefnum hefur borist eftirfarandi tilkynning: Hermannsgangan fer fram laugardaginn 11. febrúar í Hlíðarfjalli og hefst kl. 13:00.  Gangan er hluti af Íslandsgöngumótaröð sem fram fer vítt og breitt um landið og er tilgangurinn m.a. að  hvetja almenning til þátttöku í þessari hollu íþróttagrein. Skráning hefst kl 10:30 í gönguhúsinu.  Verðlaunaafhending og veitingar verða strax að móti loknu.

Íslandsgangan: Hermannsgangan á Akureyri 11. febrúar Read More »