Málfríður Guðmundsdóttir

Skíðagöngumót í Fljótum – breytt dagsetning

Vefnum hefur borist eftirfarandi orðsending frá Birgi Gunnarssyni, mótsstjóra Skíðagöngumóts í Fljótum: Kæru Ullungar Vegna fjölda viðburða í Fljótum og Fjallabyggð um páskana, þarf að breyta dagsetningu mótsins og mun það fara fram á skírdag þann 17 apríl. Vona að þetta komi ekki að sök, sjáumst hress og spræk í Fljótum. Kveðja, Birgir Smellið á […]

Skíðagöngumót í Fljótum – breytt dagsetning Read More »

Íslenskir skíðagöngumenn á Ólympíuleikum

Margir velta því sjálfsagt fyrir sér meðan horft er á æsispennandi keppni í skíðagöngu í Sochi hvernig þátttöku íslenskra skíðagöngumanna á Ólympíuleikum hafi verið háttað á fyrri árum. Svolítil samantekt hefur því verið sett á síðu sem finna má undir „Skíðagöngusögur“ í svörtu línunni hér fyrir ofan, eða hér:  http://ullur.wordpress.com/skiðagongusogur/islenskir-skidagongumenn-a-olympiuleikum/

Íslenskir skíðagöngumenn á Ólympíuleikum Read More »

Ofurtröllamót á Tröllaskaga

Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg mun halda fyrsta fjallaskíðamót landsins föstudaginn langa, 18. apríl 2014. Mótið hefst í Fljótum og verður gengið frá Heljartröð yfir Siglufjarðarskarð í átt að Illviðrishnjúki, meðfram skíðasvæðinu í Skarðsdal og niður til Siglufjarðar.  Keppnisleiðin er krefjandi og því mikil ögrun fyrir þátttakendur. Vegleg og óvænt verðlaun eru í boði fyrir keppendur í karla- og kvennaflokki.

Ofurtröllamót á Tröllaskaga Read More »

Skíðagöngumót í Fljótum

Það er greinilegur vöxtur í skíðagönguíþróttinni um þessar mundir og má merkja það ekki aðeins af fjölgun þátttakenda í skíðagöngumótum heldur einnig fjölgun göngumóta. Hingað til hafa flest mót verið á vegum SKÍ eða héraðsmót eða innanfélagsmót einstakra skíðafélaga en nú bætist nýtt mót við í flóruna, „Skíðagöngumót í Fljótum“. Ferðafélag Austur-Fljóta stendur fyrir skíðagöngumóti í Fljótum

Skíðagöngumót í Fljótum Read More »

Myndir frá Bláfjallagöngu og bikarmóti

Nú eru komnar myndir úr bikarmótinu á föstudagskvöldi og úr sameiginlegri Bláfjallagöngu og bikarmóti síðastliðinn laugardag á myndavef Ullar. Þið finnið myndirnar með því að smella á „Myndasafn“ í hægri dálki, neðan við auglýsingarnar. Í þessum fyrsta skammti af myndum eru 88 myndir en von er á fleiri myndum síðar. Þeir sem luma á góðum

Myndir frá Bláfjallagöngu og bikarmóti Read More »

Bráðabirgðaúrslit í Bláfjallagöngu og bikarmóti

Eins og fram kom í síðustu færslu hér á vefnum verður nokkur bið á því að hægt verði að birta heildarúrslit í Bláfjallagöngunni og bikarmótinu. Okkur þykir það mjög leitt en við þetta verður ekki ráðið. Til bráðabirgða birtum við nú nöfn og tíma verðlaunahafa í hverjum flokki bæði í Bláfjallagöngu og bikarmóti. Reyndar vantar

Bráðabirgðaúrslit í Bláfjallagöngu og bikarmóti Read More »

Metþátttaka í Bláfjallagöngu og bikarmóti í gær en móti frestað í dag

Það var einstakur dagur í Bláfjöllum í gær. Um eða ufir 100 manns gengu hinar ýmsu vegalengdir sem í boði voru í Bláfjallagöngunni og bikarmóti SKÍ og þeir, sem þar voru, eiga varla orð til að lýsa ánægju sinni enda voru aðstæður eins og þær gerast bestar, glaðasólskin og hægur vindur en nokkurt frost. Hér

Metþátttaka í Bláfjallagöngu og bikarmóti í gær en móti frestað í dag Read More »

Fyrsta keppnisdegi í bikarmóti SKÍ lokið

Keppt var í bikarmóti SKÍ í Bláfjöllum í gærkvöldi en þá áttust 23 keppendur við í sprettgöngu.  Brautin var um 900 m löng og fljótastir allra voru þeir Guðmundur Sigurvin Bjarnason og Albert Jónsson, báðir frá Ísafirði, sem kepptu í flokki drengja 16-17 ára Tímamunur á þeim var aðeins 41/100 úr sekúndu, þeim fyrrnefnda í

Fyrsta keppnisdegi í bikarmóti SKÍ lokið Read More »