Málfríður Guðmundsdóttir

Öll námskeið fullbókuð!

Það kom ekki mjög á óvart að talsverð aðsókn yrði að námskeiðunum þremur sem Ullur mun halda laugardaginn 17. janúar en eftirspurnin fór þó fram úr björtustu vonum. Nú eru öll námskeiðin þrjú fullbókuð og vel það. Það verða því rúmlega 120 manns sem fá tilsögn í hinni bráðskemmtilegu almenningsíþrótt skíðagöngu um komandi helgi og […]

Öll námskeið fullbókuð! Read More »

Afreksþjálfun – ráðstefna 15. janúar 2015

Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 15. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101. Margir áhugaverðir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksíþróttir. Fyrirlestrarnir fara bæði fram á íslensku og ensku. Ráðstefnustjóri verður Sigurbjörn Árni Arngrímsson. Hér má lesa meira um

Afreksþjálfun – ráðstefna 15. janúar 2015 Read More »

Mikil aðsókn að námskeiðum

Það hafa margir skráð sig á námskeiðin laugardaginn 17. janúar og námskeiðin kl. 11 og kl. 13 eru fullbókuð. Allar birgðir félagsins af skíðabúnaði eru líka bókaðar. Það var því nauðsynlegt að loka fyrir skráningu þeirra sem þurfa að fá lánuð skíði og skráningarkrækja fyrir skíðalán hefur verið fjarlægð. Enn eru hins vegar örfá pláss á námskeiðinu

Mikil aðsókn að námskeiðum Read More »

Fjarðargangan 2015

Það verður mikið um að vera í Íslandsgöngunni um helgina. Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum fer Hermannsgangan á Akureyri fram laugardaginn 10. janúar og daginn eftir, sunnudaginn 11. janúar, verður keppt í Fjarðargöngunni á Ólafsfirði. Allar upplýsingar um Fjarðargönguna má fá með því að smella á myndina hér til vinstri. Ullungar

Fjarðargangan 2015 Read More »

Skíðagöngunámskeið fyrir almenning

Nú styttist í námskeið í skíðagöngu fyrir byrjendur og aðra sem vilja ná svolítið betri tökum á göngutækninni. Laugardaginn 17. janúar verða haldin þrjú slík námskeið og hefjast þau kl. 11, kl. 13 og kl. 15. Gera má ráð fyrir að hvert námskeið standi rúma klukkustund. Þau sem ekki eiga skíðagöngubúnað geta fengið hann lánaðan

Skíðagöngunámskeið fyrir almenning Read More »

Skíðagöngubrautin í Heiðmörk

Það hefur aðeins borið á því að fólk finni ekki nýju skíðagöngubrautina í Heiðmörk. Til að ráða bót á því hefur Árni Tryggvason búið til glæsilegt kort og eftirfarandi leiðarlýsingu: Hér er kort sem sýnir hvar skíðastígurinn í Heiðmörk er staðsettur. Hann er merktur þarna sem blá lína og upphafstaðurinn og bílastæðið með blárri stjörnu.

Skíðagöngubrautin í Heiðmörk Read More »

Hermannsgangan  10. janúar

Fer fram  laugardaginn 10.janúar við gönguhúsið í Hlíðarfjalli og hefst kl 12:00, vinsamlegast sendið skráningar á ganga@internet.is. Verðaunaafhending  og veitingar verða strax  að göngu lokinni í Hlíðafjalli. Keppt verður í eftirfarandi vegalengdum: Hermannsgangan 24 km,  þátttökugjald 2500 kr. Hermannsgangan 12 km og 4 km, Þátttökugjald 16 ára og eldri 1500 kr.   Þátttökugjald 15 ára og

Hermannsgangan  10. janúar Read More »