Málfríður Guðmundsdóttir

Skíðagöngufélagið Ullur leitar að þjálfara fyrir börn og unglinga veturinn 2011-2012

Starf þjálfarans felst í því að skipuleggja og stýra æfingum barna og unglinga og eftir atvikum sjá um æfingar og námskeið fyrir fullorðna, einkum eftir áramótin. Gert er ráð fyrir að þar til skíðafæri er komið verði æfingar  2-4 á mánuði en síðan 2 á viku. Æfingar fram að  snjóum verði í Reykjavík en síðan í Bláfjöllum eða eftir […]

Skíðagöngufélagið Ullur leitar að þjálfara fyrir börn og unglinga veturinn 2011-2012 Read More »

Hjólaskíðamót Ullar 17. september 2011, athugið breytta dagsetningu!

Ráðgert hafði verið að hið árlega hjólaskíðamót Ullar færi fram sunnudaginn 18. september 2011 á Seltjarnarnesi. Vegna mjög óhagstæðrar veðurspár hefur hins vegar verið ákveðið að færa mótið fram um einn dag en þá er veðurútlit mun betra. Mótið verður því haldið laugardaginn 17. september 2011. Ræst verður frá gatnamótum Suðurstrandavegar og Bakkavarar (sjá mynd

Hjólaskíðamót Ullar 17. september 2011, athugið breytta dagsetningu! Read More »

Mótaskrá SKÍ 2011-2012

Skíðasamband Íslands hefur birt mótaskrá sína fyrir komandi vetur og má sjá hana hér á undirsíðu undir „Æfingar og keppni“. Svolitlar breytingar verða á Íslandsgöngunni frá því sem verið hefur síðustu ár. Fyrsta gangan, Skíðastaðagangan á Akureyri verður ekki fyrr en 11.-12. febrúar. Þá bætist við ganga á Ólafsfirði 25.-26. febrúar og Bláfjallagöngunni seinkar frá

Mótaskrá SKÍ 2011-2012 Read More »

Haukadalsskógur. Æfingasvæði framtíðarinnar???

Drauma gönguskíðabrautir. Skógarhöggsmennirnir eru sífellt að búa til nýjar brautir og slóða inni í Haukadalsskógi og þar eru margar skemmtilegar gönguleiðir og reiðstígar. Skógurinn er heilmikið notaður af útivistarfólki. „Til hvers að hafa skóg sem ekki er hægt að fara um?“ spyr Einar sem er mjög stoltur af afrakstrinum. „Við erum með nokkrar mjög breiðar

Haukadalsskógur. Æfingasvæði framtíðarinnar??? Read More »

Ólympíuleikar ungmenna 2012

Borist hefur ábending frá Skíðasambandi Íslands um eftirfarandi frétt á vef sambandsins: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heftur móttekið erindi frá Alþjóðaskíðasambandinu (FIS) þar sem kemur fram að Ísland muni eiga keppendakvóta á ólympíuleikum ungmenna  2012 fyrir einn pilt og eina stúlku í alpagreinum skíðaíþrótta. Þá er einn piltur númer 5 á varamannalista í skíðagöngu. Skíðasamband Íslands

Ólympíuleikar ungmenna 2012 Read More »

Æfingar og keppni haustsins

Haustið nálgast og á stjórnarfundi, sem haldinn var mánudaginn 22. ágúst, voru lagðar línur um æfingar og keppni í haust. Stefnt er að tvenns konar æfingum: Hjólaskíðaæfingar verða á hverjum þriðjudegi kl. 17:30 frá Víkingsheimilinu í Fossvogi. Fyrsta æfing verður 30. ágúst. Reynt verður að haga æfingum þannig að þær henti öllum, bæði byrjendum og

Æfingar og keppni haustsins Read More »

Opin landsliðsæfing Skíðagöngunefndar SKÍ um verslunarmannahelgina

Jæja, þetta virðist ætla að verða flottur og stór hópur sem mætir á Hvammstanga um helgina og verður gaman að hittast! Linus landsliðsþjálfari byrjar með landsliðið á æfingum á Akureyri í dag og verða tvær æfingar á dag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Flestir virðast vera á leiðinni á Hvammstanga seinnipartinn á föstudag og þess vegna

Opin landsliðsæfing Skíðagöngunefndar SKÍ um verslunarmannahelgina Read More »