Málfríður Guðmundsdóttir

Myndir frá hjólaskíðamótinu komnar á myndavefinn

Nú eru fleiri myndir frá hjólaskíðamótinu komnar á myndavefinn, smellið á mynd merkta „Myndasafn“ í dálkinum hér til hægri. Ef einhverjir eiga myndir frá mótinu, sem þeir vildu birta á vefnum, þætti okkur fengur að því, aðstoð eða upplýsingar um hvernig farið er að því verða fúslega veittar!

Myndir frá hjólaskíðamótinu komnar á myndavefinn Read More »

Hjólaskíðamót – Leiðarlýsing og kort

Hér má sjá kort af fyrirhugaðri keppnisbraut á laugardaginn. Keppendur byrja á því að fara hringinn sem sést hægra megin á myndinni. Þegar komið er í gegnum marksvæðið er haldið beinustu leið út að göngubrúnni yfir Kringlumýrarbraut en þar er snúið við og haldið til baka sömu leið. Þegar komið er til móts við Fossvogsskóla er

Hjólaskíðamót – Leiðarlýsing og kort Read More »

Hjólaskíðamót

Þá er komið að fyrsta atburði skíðavetrarins á vegum félagsins en hið árlega hjólaskíðamót verður haldið næstu helgi eða nánar tiltekið laugardaginn 20. september kl. 16 í Fossvogsdal. Upphaflega stóð til að halda mótið á sunnudeginum en vegna óhagstæðrar veðurspár var ákveðið að flýta mótinu. Ræsing og mark verða við Víkingssvæðið en keppnisflokkar og rástímar

Hjólaskíðamót Read More »

Samæfing skíðagöngufólks á Ísafirði 11.–14. september 2014

Nú er komið að síðustu samæfingu sumarsins fyrir 12 ára og eldri á vegum SKÍ. Allt skíðagöngufólk er hvatt til að nýta sér þetta tækifæri enda styttist nú mjög í veturinn. Allar upplýsingar um skráningu, gistingu, dagskrá og annað sem máli skiptir má fá með því að smella á merki Skíðasambandsins hér til hliðar. Athygli

Samæfing skíðagöngufólks á Ísafirði 11.–14. september 2014 Read More »

Þróunarþrepin í skíðagöngu

Nú hefur væntanlega allt skíðagöngufólk á landinu skráð sig í æfingabúðir um helgina og flestir því sjálfsagt með hugann við æfingar og þjálfun. Það er því liklega ekki úr vegi að benda á dálítið bókarkorn sem ber titilinn Utviklingstrappa i langrenn sem mætti þýða sem Þróunarþrepin í skíðagöngu. Eins og nafnið ber með sér er

Þróunarþrepin í skíðagöngu Read More »

Æfingabúðir 12.-15. júní

Minnt er á æfingabúðirnar í Reykjavík um aðra helgi. Allt skíðagöngufólk er hvatt til að notfæra sér þetta einstaka tækifæri. Í tengslum við samæfinguna kemur hingað til lands Steinar Mundal, landsliðsþjálfari norska karlaliðsins í skíðagöngu.  Steinar er með reynslumestu skíðagönguþjálfurum í heimi og mikill fengur að fá hann hingað.  Hann mun fylgjast með æfingunni á

Æfingabúðir 12.-15. júní Read More »