Málfríður Guðmundsdóttir

Sunnudagur 11. desember, gott færi í Bláfjöllum

Nú lítur út fyrir mjög góðan dag í Bláfjöllum. Þar hefur snjóað talsvert og búið er að leggja 3,5 km göngubraut um Neðri-Sléttu, upp fyrir hólinn og niður gilið. Veðrið er gott, austangola og svolítill lágarenningur en vonir standa til þess að hann lægi í dag. Skálinn verður opinn fram undir kl. 16 svo nú

Sunnudagur 11. desember, gott færi í Bláfjöllum Read More »

Gunnar Birgisson á Ólympíuleika ungmenna

Á vef Skíðasambands Íslands birtist frétt um að Gunnar Birgisson, Ulli, hefur verið valinn til að keppa í skíðagöngu fyrir Íslands hönd á fyrstu Vetrarólympíuleikum ungmenna sem haldnir verða í Innsbruck 13.-22. janúar 2012. Þá munu tveir íslenskir keppendur verða í alpagreinum. Við erum ákaflega stolt af okkar manni, til hamingju Gunnar! Frétt Skíðasambandsins Vefur

Gunnar Birgisson á Ólympíuleika ungmenna Read More »

Ofurganga 2011 á Akureyri á laugardaginn

Eftirfarandi hefur borist frá Kára Jóhannessyni: Komið þið sæl. Þann 3. desember næstkomandi heldur SKA Ofurgöngu 2011, en það verður í þriðja skipti sem mótið er haldið. Ofurganga SKA er skíðagöngukeppni þar sem markmiðið er að ganga sem flesta kílómetra. Startað verður kl. 10 með hópstarti, markinu verður lokað klukkan 15 og keppendur ljúka þeim hring sem þeir

Ofurganga 2011 á Akureyri á laugardaginn Read More »