Málfríður Guðmundsdóttir

Félags- og kynningarfundur Ullar 6. desember kl 20:00

Ullur boðar til félags- og kynningarfundar þriðjudaginn 6. desember í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal kl 20:00 (stundvíslega).  Á fundinum munu Finnur Sveinsson (formaður) og Einar Ólafsson (þjálfari) fara yfir: Áherslur vetrarins Aðstöðu félagsins í Bláfjöllum og sporlagningu á öðrum stöðum Æfingar, æfingalotur og námskeið Keppnir vetrarins Félagsstarf Öllum skíðaverslunum í bænum og þó víðar væri […]

Félags- og kynningarfundur Ullar 6. desember kl 20:00 Read More »

Æfinga- og keppnisgallar fyrir Ullunga!

Í fyrra gerði Skíðagöngufélagið Ullur samkomulag við Craftsport (www.craft.is) á Ísafirði um sölu á skíðagöllum til félagsmanna. Um er að ræða keppnisgalla og utanyfirgalla (buxur og jakki) fyrir bæði fullorðna og börn.  Létt og þægileg föt frá Craft (www.craftsportswear.com) sem henta jafn á skíði, í hlaupin, hjólreiðar og gönguferðir. Núna er fyrirhugað að fara af

Æfinga- og keppnisgallar fyrir Ullunga! Read More »

Hjólaskíðamót helgina 1. – 2. október

Þá er komið að fyrsta atburði skíðavetrarins á vegum félagsins en hið árlega hjólaskíðamót verður haldið næstu helgi í Fossvogsdal. Keppt verður í sprettgöngu kl 17:00 á laugardeginum og í lengri vegalendum á sunnudagsmorgni kl 10:00. Ræsing og mark verða við Víkingssvæðið en keppnisflokkar og rástímar verða sem hér segir: Laugardagurinn 1. október Ræsing kl. 17:00

Hjólaskíðamót helgina 1. – 2. október Read More »

Samráðsfundur um starfsemi Skíðagöngufélagsins Ullar

Þótt skyggnið sé ekki alltaf gott á göngubrautinni þarf Ullur að vita hvert hann stefnir og taka markviss og taktföst skref. Stjórn Ullar boðar því félagsmenn til samráðsfundar um starfsemi félagsins þann 8. október á Bryggjan brugghús við Grandagarð. Við munum reyna að komast að kjarnanum með uppbyggilegri umræðu í litlum hópum og fá síðan

Samráðsfundur um starfsemi Skíðagöngufélagsins Ullar Read More »

Hjólaskíðamót helgina 1.- 2. október

Fyrirhugað er að halda hið árlega hjólaskíðamót Ullar helgina 1.-2. október. Keppni hefst kl 17:00 á laugardeginum með sprettgöngu en svo á sunnudagsmorgninum verður svo keppt í lengri vegalengdum. Hægt verður að skrá sig á næstu dögum á heimasíðu félagsins en við munum þá einnig birta nánari upplýsingar. Takið helgina frá!   

Hjólaskíðamót helgina 1.- 2. október Read More »

Barna- og unglingaæfingar hefjast miðvikudaginn 14. september kl 18:00

Haustið 2016 verða reglulegar æfingar fyrir börn og unglinga á vegum Ulls undir stjórn Sigrúnar Önnu Auðardóttur þjálfara og hefjast þær miðvikudaginn 14. september. Æfingarnar eru fyrir 6 ára og eldri. Fyrirkomulag þeirra verður  með eftirfarandi hætti: Æfingar barna- og unglinga verða tvisvar í viku þar til æfingarnar færast á snjó, kl. 18:00 á miðvikudögum

Barna- og unglingaæfingar hefjast miðvikudaginn 14. september kl 18:00 Read More »

Næsta samæfing á Ísafirði 25. – 28. ágúst

Skíðagöngunefnd SKÍ boðar nú samæfingu skíðagöngufólks 12 ára og eldri 25.-28. ágúst á Ísafirði. Gist verður í skíðaskálanum í Tungudal þar sem einnig verður græjað fullt fæði alla dagana. Kostnaður við hvern þátttakanda er 13.000 kr. Landsliðsþjálfarinn Jóstein Vinjerui fer fyrir æfingunni og honum til aðstoðar verða þaulreyndir skíðamenn og þjálfarar. Dagskrána í heild ásamt upplýsingum um skráningu o.fl.

Næsta samæfing á Ísafirði 25. – 28. ágúst Read More »

Uppskeruhátíð Ullar fimmtudaginn 2. júní kl 19:00

Ágætu Ullarfélagar. Nú er frábærum vetri í starfi okkar lokið. Metþátttaka á námskeiðum. Mikil fjölgun í félaginu og síðast en ekki síst frábær árangur á skíðamótum vetrarins. Því höfum við ástæðu til að fagna árangrinum og kveðja vertíðina með hófi í góðum félagsskap hvers annars. Hófið verður haldið í Mýrakoti sem er lítill samkomusalur við gróðrastöðina Lambhaga

Uppskeruhátíð Ullar fimmtudaginn 2. júní kl 19:00 Read More »