Málfríður Guðmundsdóttir

Bláfjallaganga- frestað til sunnudagsins 13. febrúar

Vegna mjög óhagstæðrar veðurspár á laugardaginn er óhjákvæmilegt annað en að fresta Bláfjallagöngunni til sunnudags en þá á að vera mun skaplegra veður. Ræst verður á sama tíma og ætlunin var á laugardaginn það er kl. 13:00. Lesið auglýsinguna sem áður var búið að birta til að fá aðrar upplýsingar. Þóroddur F.

Bláfjallaganga- frestað til sunnudagsins 13. febrúar Read More »

Barna- og unglingaæfing á sunnudag kl 11:00

Það verður æfing fyrir börn og unglinga á sunnudaginn kl 11:00 í Bláfjöllum undir stjórn Stefáns Pálssonar. Hvetjum alla til að mæta tímanlega til að gera skíðin klár, þið sem hafið verið á æfingum takið nú vinina með og komið þeim á bragðið. Foreldrar komið með börnin og leyfið þeim að prófa gönguskíði. Allir í

Barna- og unglingaæfing á sunnudag kl 11:00 Read More »

Skíðanámskeið fyrir fatlaða

Ulli hefur borist ósk um að kynna skíðanámskeið fyrir fatlaða sem haldin verða á Akureyri. Fyrra námskeiðið verður haldið 18. til 20 febrúar en hið síðara 4. til 6. mars 2011. Það eru Íþróttasamband fatlaðra, Vetraríþróttamiðstöð Íslands og Hlíðarfjall sem standa fyrir námskeiðinu í samstarfi við Winter Park, Colorado. Kynningarbréf frá Íþróttasambandi fatlaðra er að

Skíðanámskeið fyrir fatlaða Read More »

Bikarmót í göngu um helgina á Akureyri

Skíðafélag Akureyrar og Skíðafélag Ólafsfjarðar hafa ákveðið að skipta á mótsdögum með bikarmótin sem félögin halda vegna lítilla snjóa í Ólafsfirði.  SKA heldur sitt bikarmót nú  helgina 4.-6.febrúar en SÓ heldur sitt bikarmót, sem jafnframt er Íslandsmeistaramót í lengri vegalengdum, helgina 25.-27.febrúar. Hér má lesa nánar um dagskrá mótsins: Bikarmót á Akureyri, dagskrá

Bikarmót í göngu um helgina á Akureyri Read More »