Málfríður Guðmundsdóttir

Æfingabúðir Fossavatn 2012

Vefnum hefur borist eftirfarandi bréf um æfingabúðir Fossavatnsgöngunnar á Ísafirði 22. – 25. nóvember 2012. Þess má geta að þeir, sem hafa sótt þessar æfingar undanfarin ár, þreytast ekki á að lofa þær, bæði fyrir góða og árangursríka þjálfun og skemmtilegan félagsskap. Það má því hiklaust mæla með að Ullungar fjölmenni vestur þessa helgi. Sælir […]

Æfingabúðir Fossavatn 2012 Read More »

Aðalfundur SKRR

Stjórn Skíðaráðs Reykjavíkur boðar til aðalfundar SKRR þriðjudaginn, 9. október, kl. 20:00 í fundarsal E, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Skíðagöngufélagið Ullur á rétt á að senda tvo fulltrúa á fundinn auk formanns félagsins sem er varaformaður SKRR. Ekki hefur enn verið ákveðið hverjir hinir verða en auk þeirra mun almennum félagsmönnum heimilt að sitja fundinn og

Aðalfundur SKRR Read More »

Opnum Skálafell næsta vetur!

Skíðagöngufélagið Ullur hvetur allt skíðaáhugafólk að til skrifa undir áskorun til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um að tryggja rekstur skíðasvæðisins í Skálafelli næsta vetur. Skálafell er sólríkt og fjölskylduvænt skíðasvæði sem er í öðru veðrakerfi en Bláfjöll. Opnun Skálafells tryggir öllu skíða- og brettafólki fleiri opnunardaga og betra skíðatímabil. Skrifið undir hér:   http://www.opnumskalafell.is

Opnum Skálafell næsta vetur! Read More »

Kópaþrek 2012

Ulli hefur borist eftirfarandi bréf frá skíðadeild Breiðabliks (hér örlítið stytt): Komið þið sæl skíðaunnendur!! Enn á ný hrindir skíðdadeild Breiðabliks af stað hinu víðfræga Kópaþreki. Í fyrra tókst gríðarlega vel til þegar að 70 krakkar alls staðar að af landinu tóku þátt.  Öllum skíðaiðkendum landsins á aldrinum 12-15 ára (árg. 1997-2000) er hér með

Kópaþrek 2012 Read More »