Málfríður Guðmundsdóttir

Bláfjöll laugardag 4. janúar

Það var frábært færi í Bláfjöllum í kvöld og búið að leggja spor sem er til fyrirmyndar, líklega besta æfingaspor sem boðið er uppá á landinu, hæfilega snarpar brekkur upp og aflíðandi rennsli niður. Á morgun laugardag verður skálinn opinn eins og skíðasvæðið í heild (10-17) og námskeið fyrir byrjendur kl 13 en nánast fullbókað

Bláfjöll laugardag 4. janúar Read More »

Ný bók: Skíðaganga eftir Einar Ólafsson

Bókin Skíðaganga eftir ólympíufarann Einar Ólafsson er að koma út. Bókin er fyrsta kennslubók um skíðagöngu sem komið hefur út á Íslandi og er hún ætluð bæði keppnisfólki og almenningi sem hefur gaman af að stunda gönguskíði sér til skemmtunar. Í bókinni er mikið af skýringarmyndum og texta um hvernig best er að bera sig

Ný bók: Skíðaganga eftir Einar Ólafsson Read More »

Gönguskíðadagur í Everest á sunnudaginn

Birgir Gunnarsson, sem líklega er fróðastur allra Ullunga um gönguskíði og þann búnað sem þeim tilheyrir, verður í versluninni Everest, Skeifunni 6, og leiðbeinir um skíðakaup sunnudaginn 15. desember milli kl. 15 og 17. Það er nýkomin sending af Fischer gönguskíðum og skóm í Everest þannig að það ætti að vera úr nógu að velja.

Gönguskíðadagur í Everest á sunnudaginn Read More »