Málfríður Guðmundsdóttir

Bláfjallagangan laugardag 28. mars 2015

Það hefur gengið brösuglega að ljúka Bláfjallagöngunni í vetur og enn er stefnt á að halda hana laugardaginn 28. mars. Þessa helgi fer fram Unglingameistaramót Íslands í Bláfjöllum og þar er keppt í göngu með hefðbundinni aðferð fyrri hluta dags en að þeirri keppni lokinni er Bláfjallagangan á dagskrá. Bláfjallagangan fer fram við skála Ullunga

Bláfjallagangan laugardag 28. mars 2015 Read More »

Unglingameistaramót Íslands í Bláfjöllum 28.–30. mars

Unglingameistaramót Íslands 2015 fer fram í Bláfjöllum 28.–30. mars næstkomandi. Keppendur eru á aldrinum 12 til 15 ára og er keppt í bæði alpagreinum og skíðagöngu. Ullur annast göngukeppnina fyrir hönd SKRR og fer hún fram við skála félagsins. Á laugardag verður keppt með hefðbundinni aðferð, með frjálsri aðferð á sunnudag og á mánudag verður

Unglingameistaramót Íslands í Bláfjöllum 28.–30. mars Read More »

Enn er óhjákvæmilegt að fresta Bláfjallagöngunni

Vegna óhagstæðs veðurútlits yfir helgina, bæði til mótahald og ferðalaga, hefur mótanefnd SKÍ tekið þá ákvörðun að fresta öllu mótahaldi um helgina. Auk Bláfjallagöngunnar á þetta við tvö bikarmót í alpagreinum, annað þeirra átti að vera í Reykjavík en hitt í Stafdal. Nýjar dagsetningar verða fundnar og birtar síðar.

Enn er óhjákvæmilegt að fresta Bláfjallagöngunni Read More »

Bláfjallagangan 2015 verður laugardaginn 14. mars

Bláfjallagangan, sem frestað var vegna veðurs um miðjan febrúar, fer fram við skála Ullunga í Bláfjöllum laugardaginn 14. mars næstkomandi. Bláfjallagangan er hluti af Íslandsgöngunni sem er almenningsmótaröð SKÍ. Gangan hefst kl 13:00 en þó er möguleiki fyrir þá sem ekki hafa gengið 20 km á innan við 2 klst. að hefja gönguna kl. 12:30. Allir þátttakendur fá viðurkenningu

Bláfjallagangan 2015 verður laugardaginn 14. mars Read More »