Bláfjallagangan 2015 verður laugardaginn 14. mars

Blafjallagangan-2015-2Bláfjallagangan, sem frestað var vegna veðurs um miðjan febrúar, fer fram við skála Ullunga í Bláfjöllum laugardaginn 14. mars næstkomandi. Bláfjallagangan er hluti af Íslandsgöngunni sem er almenningsmótaröð SKÍ. Gangan hefst kl 13:00 en þó er möguleiki fyrir þá sem ekki hafa gengið 20 km á innan við 2 klst. að hefja gönguna kl. 12:30. Allir þátttakendur fá viðurkenningu og einnig verða útdráttarverðlaun. Eftir keppni er verðlaunaafhending og kaffisamsæti.
Boðið verður uppá þrjár vegalengdir, 5 km, 10 km og 20 km. Keppnisgjald í 20 km er 2.500 kr. en í 5 og 10 km er gjaldið 1.500 kr. Tólf ára og yngri greiða 1.000 kr.
Skráning er hér á vef Skíðagöngufélagsins Ullar, (smellið á myndina í dálkinum hér til hægri) og lýkur kl. 20 föstudaginn 13. mars. Skráningu á keppnisstað lýkur kl 12:00 og er skráningargjald í 20 km þá 3.500 kr.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur