Hjólaskíðamót Ullar 20. september

Hjólaskíðamót Ullar fer fram sunnudaginn 20. september næstkomandi klukkan 09:15. Kept verður á Kvartmílubrautinni í Hafnafirði. Í boði verða fleiri en ein vegalengd og hentar brautin öllum, hvort sem er byrjendum eða lengra komnum. Eins og undanfarin ár verða glæsileg útdráttarverðlaun í boði.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og vegalengdum:
– 9 ára og yngri (fædd 2016 og yngri) 2 km – 1 stór hringur
– 10 – 12 ára (fædd 2013-2015) 4 km – 1 stór og einn minni hringur
– 12 ára og yngri mega vera á hvort sem er línuskautum eða hjólaskíðum og er frjáls aðferð leyfileg
– 13 – 15 ára stúlkur og piltar (fædd 2010-2012) 7 km. Hefðbundin aðferð. – 3 stórir hringir
– 16 ára og eldri konur og karlar (fædd 2009 og eldri). Val um 5km eða 10 km. Hefðbundin aðferð.
5km – 2 stórir hringir
10km – 4 stórir hringir

Athugið að 13 ára og eldri mega einungis keppa á hjólaskíðum með stoppara (ekki á skautahjólaskíðum).

Hjálmaskylda er í keppninni.

Brautarverðir verða á helstu stöðum en biðjum þátttakendur þó að vera búin að skoða kort og kynna sér brautina fyrir keppni.

Þátttökugjald:
15 ára og yngri fá frítt
16 ára og eldri borga 1.000kr

Hægt er að borga skráningargjald með því að leggja inn á reikning Ullar og senda tilkynningu á  ullarpostur at gmail.com með skýringunni „HSMÓT26″

Reikningur: 0117-26-006770
Kennitala: 600707-0780

Allar skráningar skulu berast á ullarpostur at gmail.com. Senda skal nafn, fæðingarár, félag. Þau sem hyggjast keppa á línuskautum (12 og yngri) taki það fram í póstinum.

Skráningarfrestur er laugardagurinn 19. september kl 20:00

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Hér fyrir neðan má sjá kort af brautunum

Mynd og hæðargraf af stærri hringnum

Mynd og hæðargraf af minni hringnum

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur