Málfríður Guðmundsdóttir

Úrslit úr hefðbundinni göngu á bikarmóti

Þá er síðustu keppni á bikarmóti helgarinnar lokið en keppt var í hefðbundinni göngu með einstaklingsstarti í köldu en hægu og björtu veðri í Bláfjöllum í morgun. Sigurvegari í kvennaflokki sem gekk 7,9 km var Elsa Guðrún Jónsdóttir og í karlaflokki sem gekk 10 km var fyrstur Sævar Birgisson en þau keppa bæði fyrir Skíðafélag […]

Úrslit úr hefðbundinni göngu á bikarmóti Read More »

Sprettgöngu lokið

Í kvöld lauk fyrstu keppni af þremur á bikarmóti SKÍ í Bláfjöllum sem fer fram um helgina. Keppt var í sprettgöngu við frábærar aðstæður en keppendur gengu 1,2 km sprett með hefðbundinni aðferð. Það voru þau Sævar Birgisson og Elsa Guðrún Jónsdóttir sem keppa fyrir Skíðafélag Ólafsfjarðar, sem sigruðu í karla- og kvennaflokki. Öll úrslit

Sprettgöngu lokið Read More »

Bikarmót í Bláfjöllum 12. – 14. febrúar 2016

Bikarmót SKÍ fyrir 12 ára og eldri verður haldið í Bláfjöllum 12.– 14. febrúar 2016. Mótsboð og dagskrá má finna hér: Mótsboð/dagskrá Forsvarsmönnum skíðafélaga er bent á að þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir kl 12:00 miðvikudaginn 10. febrúar 2016 í tölvupóstfangið ullarpostur@gmail.com  

Bikarmót í Bláfjöllum 12. – 14. febrúar 2016 Read More »

Úrslit úr fyrsta innanfélagsmóti vetrarins

Í kvöld fór fram fyrsta innanfélagsmót vetrarins þar sem keppt var í 5 km hefðbundinni göngu með hópstarti. Aðstæður voru eins og best var á kosið og skráðu 27 kappar sig til leiks. Að keppni lokinni gæddu þátttakendur sér á kökum og freistuðu þess að vinna til verðlauna en fjölmörg útdráttarverðlaun voru í boði. Úrslit kvöldsins

Úrslit úr fyrsta innanfélagsmóti vetrarins Read More »

Innanfélagsmót í Bláfjöllum þriðjudaginn 2. febrúar kl 19:30

Innanfélagsmót verður haldið í Bláfjöllum þriðjudaginn 2. febrúar kl 19:30. Keppt verður í flokki kvenna og karla í hefðbundinni göngu. Ræst verður með hópstarti og gengnir 5km. Innanfélagsmótið er kjörinn vettvangur nýliða til að öðlast smá keppnisreynslu fyrir Íslandsgöngur vetrarins. Skráning fer fram í skála Ullar frá kl 18:10 og skráningu lýkur 19:10. Þátttökugjald er 1000 kr

Innanfélagsmót í Bláfjöllum þriðjudaginn 2. febrúar kl 19:30 Read More »

Æfingabúðir Fossavatnsgöngunnar

Ný styttist í hinar geysivinsælu æfingabúðir Fossavatnsgöngunnar á Ísafirði en þær fara fram 4. – 7. febrúar.  Það má hiklaust fullyrða að íslensku skíðagöngufólki gefst hvergi betra tækifæri til að búa sig undir skíðagöngur vetrarins, hvort sem stefnt er á Íslandsgöngur eða stórafrek í útlöndum. Allar nauðsynlegar upplýsingar eins og hvernig má skrá sig má finna

Æfingabúðir Fossavatnsgöngunnar Read More »

Barna- og unglingaæfingar hafnar á ný

Um helgina mátti sjá í Bláfjöllum hóp af frískum krökkum á gönguskíðum en þar var á ferðinni hópur ungra Ullunga undir stjórn Sigrúnar Auðardóttur sem nýtekin er við sem þjálfari. Fyrirkomulag æfinganna í vetur er sem hér segir: – Æfingar fyrir alla, 6 ára og eldri, kl. 11 á laugardögum og sunnudögum við Ullarskálann í Bláfjöllum 1,5

Barna- og unglingaæfingar hafnar á ný Read More »