Málfríður Guðmundsdóttir

Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ulls 2011

Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ulls verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Engjavegi 6, sal C, miðvikudaginn 6. apríl 2011 kl. 20. Málefni sem félagar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum skulu hafa borist stjórn minnst viku fyrir aðalfund. Mál sem berast eftir að sá frestur er liðinn verða ekki tekin fyrir nema 2/3 fundarmanna samþykki […]

Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ulls 2011 Read More »

Skíðamóti Íslands lokið

Göngugreinum í Skíðamóti Íslands er nú lokið. Síðasta grein göngukeppninnar, boðganga, fór fram í dag í aldeilis frábæru veðri og skíðafæri. Sex karlasveitir luku keppni í boðgöngunni en ekki reyndist unnt að ná saman kvennasveitum þannig að sú keppni teldist gild. Í stað þess var fitjað upp á keppni í tvíkeppni kvenna. Tvær sveitir tóku

Skíðamóti Íslands lokið Read More »

Landsmótið – dýrðardagur í Bláfjöllum

Þegar Bláfjöllin sýna sig frá þeirri hlið sem þau gerðu í dag er erfitt að hugsa sér að til sé betra og fallegra skíðagöngusvæði. Sólin skein, vindurinn rétt náði að breiða úr flöggum svo mætti sjá hvað á þeim stóð og nýr og hvítur snjór yfir öllu. Skíðafærið ævintýralega gott þannig að keppendur voru mun

Landsmótið – dýrðardagur í Bláfjöllum Read More »

Landsmótið, góður dagur í Bláfjöllum

Keppni í skíðagöngu á Skíðamóti Íslands hélt áfram í Bláfjöllum í dag. Það hafði snjóað talsvert um nóttina og fyrr um daginn en skömmu áður en keppnin hófst stytti upp og sólin fór að skína gegnum þunnar þokuslæður sem komu og fóru. Þetta varð því dýrðardagur í frábæru veðri og allgóðu skíðafæri þótt snjórinn væri

Landsmótið, góður dagur í Bláfjöllum Read More »

Landsmótið – úrslit í sprettgöngu

Keppni í sprettgöngu fór fram samkvæmt áætlun við skála Ullar í Bláfjöllum. Veðurútlit var að vísu ekki gott, gekk á með hvössum rigningar- og slydduhryðjum. Á farastjórafundi skömmu áður en mótið skyldi hefjast var ákveðið að láta engan bilbug á sér finna. Rétt áður en gangan hófst stytti svo upp og veður hélst gott meðan

Landsmótið – úrslit í sprettgöngu Read More »

Landsmót – Sprettgangan – staðsetning

Fimmtudagur 31. mars – sprettganga. Sprettgangan verður á „Ullarvangi“ eða í jaðri sléttunnar við skála Ullunga í Bláfjöllum. Allt áhugafólk um skíði er hvatt til að mæta bent er á að e.t.v. er best fyrir áhorfendur að vera á skíðum, alla vega vel skóað, þar sem snjór kanna að vera orðinn gljúpur. Sprettgangan hefst kl.

Landsmót – Sprettgangan – staðsetning Read More »