Skíðagöngufélagið Ullur

Ullur með sterk frammistöður á Skíðamóti Íslands – bikarmeistarar í flokki fullorðinna

Skíðalandsmót Íslands í skíðagöngu fór fram á Ólafsfirði dagana 28.–30. mars. Keppendur Skíðagöngufélagsins Ullar tóku þar þátt og skiluðu félaginu eftirtektarverðum árangri. Á síðasta keppnisdegi voru jafnframt bikarmeistarar SKÍ fyrir tímabilið 2025–2026 krýndir. Kristrún Guðnadóttir átti mjög gott mót og vann allar einstaklingsgreinar, auk þess sem hún og María Kristín Ólafsdóttir unnu liðasprett kvenna. María […]

Ullur með sterk frammistöður á Skíðamóti Íslands – bikarmeistarar í flokki fullorðinna Read More »

Bláfjallagangan 2026 – Upplýsingar

Bláfjallaganga Ullar fer fram á morgun laugardag 21. mars við Ýdali, skála Skíðagöngufélagins Ullar í Bláfjöllum.  Skráningarfrestur hefur verið framlengdur og er til kl 18 í kvöld: https://netskraning.is/blafjallagangan/ Dagskrá: Föstudagur 20. mars Frá kl. 16 – 18: Afhending keppnisgagna í Fjallakofanum, Hallarmúla 2 Laugardagur 21. mars: Bláfjallagangan 14:00: Ræsing fyrir keppendur í 40 km. Hópstart  14:30:

Bláfjallagangan 2026 – Upplýsingar Read More »

Vel heppnað bikarmót á Ólafsfirði

Um nýliðna helgi fór fram þriðja bikarmót SKÍ í skíðagöngu þetta árið. Áður höfðu verið haldin tvö mót á Akureyri, annars vegar í desember og hins vegar í janúar. Janúarmótið átti upphaflega að fara fram á Ísafirði en var flutt vegna snjóleysis til Akureyrar. Sama átti við um bikarmótið á Ólafirði, sem var flutt þangað

Vel heppnað bikarmót á Ólafsfirði Read More »

Hjalti Böðvarsson á HM unglinga

Ullungurinn Hjalti Böðvarsson hefur verið valinn til þátttöku á heimsmeistaramóti unglinga sem að fer fram í Lillehammer í Noregi. Ásant Hjalta taka þátt á mótinu fyrir hönd Íslands þeir Einar Árni Gíslason frá Skíðafélagi Akureyrar og Ástmar Helgi Kristinsson og Grétar Smári Samúelsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga en samhliða heimsmeistaramóti unglinga fer fram heimsmeistaramót U23. Mótið

Hjalti Böðvarsson á HM unglinga Read More »

Fjórir frá Ulli með í Gålå

Um nýliðna helgi var mikið um að vera hjá okkar fremsta skíðagöngufólki. Á norska bikarmótinu í Gålå átti Ullur hvorki meira né minna en fjóra keppendur, þau Kristrúnu Guðnadóttur, Fróða Hymer, Hjalta Böðvarsson og Maríu Kristínu Ólafsdóttur. Kristrún og Fróði keppa í flokki fullorðinna en Hjalti og María Kristín í unglingaflokki. Auk þeirra voru fleiri

Fjórir frá Ulli með í Gålå Read More »