Ullungurinn Hjalti Böðvarsson hefur verið valinn til þátttöku á heimsmeistaramóti unglinga sem að fer fram í Lillehammer í Noregi. Ásant Hjalta taka þátt á mótinu fyrir hönd Íslands þeir Einar Árni Gíslason frá Skíðafélagi Akureyrar og Ástmar Helgi Kristinsson og Grétar Smári Samúelsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga en samhliða heimsmeistaramóti unglinga fer fram heimsmeistaramót U23.
Mótið hefst í dag með sprettgöngu með frjálsri aðferð þar sem að Hjalti verður meðal annars meðal þátttakenda.
Hægt er að fylgjast nánar með mótinu hér: FIS | Lillehammer (NOR) – Event Details – Cross-Country
Skíðagöngufélagið Ullur er stolt af Hjalta og óskar honum og öðrum keppendum Íslands á mótinu góðs gengis!