Vel heppnað bikarmót á Ólafsfirði

Um nýliðna helgi fór fram þriðja bikarmót SKÍ í skíðagöngu þetta árið. Áður höfðu verið haldin tvö mót á Akureyri, annars vegar í desember og hins vegar í janúar. Janúarmótið átti upphaflega að fara fram á Ísafirði en var flutt vegna snjóleysis til Akureyrar. Sama átti við um bikarmótið á Ólafirði, sem var flutt þangað frá Bláfjöllum af sömu ástæðu.

Skíðagöngufélagið hefur sent vaska sveit ungmenna á mótin sem hafa keppt í flestum flokkum. Um nýliðna helgi átti Ullur sex keppendur sem stóðu sig vel og voru félaginu til sóma. Það voru þau Áslaug Yngvadóttir, sem keppir í flokki 15–16 ára, Daði Wendel og Matthías Karl Ólafsson sem einnig keppa í sama flokki. Þá var Ólafur Sveinn Böðvarsson eini keppandi Ullar í flokki 13–14 ára. Ullur átti svo tvo fulltrúa í flokki kvenna 17 ára og eldri, þær Völu Georgsdóttur og Maríu Kristínu Ólafsdóttur.

Mótið var óhefðbundið að því leyti að aðeins var keppt tvo daga í stað þriggja. Á föstudegi var keppt í sprettgöngu með hefðbundinni aðferð og á laugardegi var keppt með frjálsri aðferð og hópstarti. Sprettgangan fór fram í talsverðum vindi og köldum aðstæðum, en krakkarnir tóku því vel og stóðu sig frábærlega. Á laugardeginum var veður hins vegar frábært, hægur vindur, bjart og aðstæður með besta móti.

Á sunnudeginum fór svo Íslandsgangan Súlur Vertical fram á Akureyri og tóku flest ungmennanna þátt, auk fleiri keppenda frá Ulli.

Úrslit frá bikarmótinu má nálgast hér.

Úrslit frá Súlur Vertical má nálgast hér.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur