Nú er komið að því! Bláfjallagangan fer fram laugardaginn 20. mars n.k. og höfum við nú opnað fyrir skráningu á https://netskraning.is/blafjallagangan/ Við erum afskaplega glöð að hafa fengið grænt ljós á að halda gönguna, en þó er ljóst að það verða nokkur atriði ekki með sama sniði og undanfarin ár. Vegna Covid verða ekki drykkir eða önnur næring í boði keppnishaldara í ár og keppendur verða því að bera með sér eigin drykki og aðra orku sem þeir vilja hafa. Á leiðinni verður þó stefnt að því að vera með í brautinni mannaðar stöðvar með aðstöðu fyrir keppendur að nærast. Kaffihlaðborð verður því miður ekki að göngu lokinni. Við stefnum að því að eiga frábæran dag með ykkur öllum, með skemmtilegri göngu, útdráttarverðlaunum og góðri stemningu. Allir þátttakendur fá frítt í sund í Ásvallalaug í Hafnarfirði þennan dag.
Bláfjallagangan 2021 – skráning hafin!
- Fréttir
Deila
Facebook
Twitter