Uppfært: Lokað er nú fyrir skráningu.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur Ullur nú bætt við öðrum hópi fyrir nýliða sem mun æfa á fimmtudögum kl 18:00.
Skíðagöngufélagið Ullur stendur fyrir 6 vikna æfingalotu fyrir félagsmenn frá 9. janúar. Æfingarnar eru ætlaðar nýjum félagsmönnum, lítt vönu skíðagöngu, t.d. hlaupurum sem stefna á að verða landvættir. Farið verður í alla helstu þætti skíðagöngunnar eins og skíðatækni, klæðnað, smurningu og fleira. Þjálfarar verða Einar Ólafsson, Grétar Laxdal Björnsson og Haraldur Hilmarsson sem allir eru mjög vanir skíðagöngumenn með áratuga skíðareynslu á bakinu.
Hópur 3 Nýliðar: Fyrsta æfing/kennsla fyrir nýliða í hópi 3 verður laugardaginn 9. janúar kl. 14:00 í Bláfjöllum. Eftir það verða æfingar á fimmtudögum kl. 18:00.
Námskeiðin fara fram við skála Ullar í Bláfjöllum og á vefnum má sjá hvernig hægt er að finna hann (finnið „Um félagið“ – „Skálinn“).
Þeir sem eru með smurningsskíði (ekki riffluð) þurfa að vera búnir að undirbúa skíðin sín fyrir kl. 18:00 fyrir fyrri æfinguna. Byrjað verður inn í skála Ullunga þar sem farið verður yfir helstu atriði í sambandi við skíðagönguna. Einnig verður farið mjög stutt yfir smurningu áburðar. Gert er ráð fyrir að a.m.k. einn tíminn fari í smurningskennslu á höfuðborgarsvæðinu miðað við veðurspá (slæmt veður og ekki hægt að hafa skíðakennslu upp í fjalli, nánari staðsetning auglýst síðar). Þegar tvísýnt verður um veður í Bláfjöllum munum við auglýsa hvort af æfingu verður og/eða hvort við flytjum hana í Heiðmörkina eða á golfvöllinn í Garðabænum. Fylgist með á Facebook-síðu Ullunga. Spurningar varðandi æfingalotuna er hægt að senda á Facebook síðu Ullunga.
Skráning og greiðslur.
Til að vera þátttakandi á æfingum Ullar þarf að vera skráður í félagið og upplýsingar um hvernig hægt er að skrá sig í félagið má finna hér.
Vikuleg æfing frá 7. jan. til 12. febrúar kostar kr. 9.000. Skráningarformið má finna efst í hægri dálki síðunnar. Skráningar taka gildi þegar að greiðsla skráningargjalds hefur farið fram. Ef þið skráið fleiri en ykkur sjálf, fyllið þá út skráningarformið fyrir hvern þátttakanda!
Greiðsluupplýsingar:
Skíðagöngufélagið Ullur
Kennitala: 600707-0780
Reikningsnúmer: 0117-26-6770
Skýring: ÆFL1
Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvaða félagsmann er verið að greiða.