Skíðagönguskóli Ullar

Skíðagönguskóli Ullar er fyrir 6-8 ára gömul börn (fædd 2013-2015). Æfingar verða einu sinni í viku frá 9. janúar og endar skólinn á ferð á Andrésar andarleikana í lok apríl.

Æfingar verða á sunnudögum klukkan 11 uppi í Bláfjöllum, 60-90 mínútur í senn.

Við viljum gjarnan hafa foreldra skíðagönguskólakrakkanna með á æfingum og gera þetta að skemmtilegri fjölskyldustund. 

Við munum vera með skráningarform þar sem foreldrar láta vita hvort þeir verði með svo við getum undirbúið æfingarnar í samræmi við það. Mikilvægt er að foreldrar séu nálægt amk þegar börnin eru að taka sín fyrstu skref á skíðum þannig að hægt sé að grípa fljótt og vel inn í ef eitthvað kemur upp. Aðalmarkmiðið er að upplifun barnanna sé sem jákvæðust og skemmtilegust og þá getur verið gott að hafa mömmu og/eða pabba nálægt.

Þar sem skíðaganga er algjörlega háð veðri og snjóalögum þurfum við að vera tilbúin að breyta til ef ekki er hægt að vera með æfingu í Bláfjöllum. Við gætum fært æfingar yfir á laugardaga, verið með æfingar á höfuðborgarsvæðinu og það getur komið til þess að æfingar falli niður vegna veðurs.

Við mælum sterklega með því (það er eiginlega skylda 😉 ) að æfingar séu verðlaunaðar með heitu kakói og einhverju góðu nesti. Hægt er að fara inn í Ullsskálann og borða nesti þar en ef það er ekki kostur þá er hægt að borða nestið í bílnum.

Verð er 15.000kr fyrir veturinn og skráningarform má finna hér.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur