Nú styttist óðum í að skíðaveturinn hefjist og erum við hjá Ulli á fullu í undirbúningi fyrir skemmtilegt starf í vetur.
Búið er að senda út félagsgjöld fyrir veturinn, rukkunin kemur sem greiðsluseðill í heimabanka. Fyrir þá sem ekki hafa fengið greiðsluseðil í heimabanka en vilja vera meðlimir í Ulli geta skráð sig í félagið hér: https://ullur.is/?add-to-cart=239
Ef einhverjar spurningar vakna getið þið sent á okkur tölvupóst á ullarpostur@gmail.com eða haft samband í gegnum facebook.
Hlökkum til að sjá ykkur í vetur!