Reykjavíkurmeistaramót í skíðagöngu

AuglysingUllur gengst fyrir Reykjavíkurmeistaramóti í skíðagöngu við skála sinn í Bláfjöllum föstudaginn 21. mars og laugardaginn 22. mars næstkomandi. Fullan keppnisrétt eiga allir félagsmenn skíðafélaga/-deilda innan Skíðaráðs Reykjavíkur (SKRR). Þeir sem vilja spreyta sig þurfa að hafa samband við sitt félag og óska eftir að verða skráðir til keppni. Þetta á að sjálfsögðu líka við félaga í Ulli, þeir þurfa að senda tölvupóst á ullarpostur@gmail.com þar sem fram kemur nafn, kennitala og keppnisgrein(ar) (frjáls aðferð og/eða hefðbundin aðferð). Og allir þurfa að gæta að því að skráningu á mótið lýkur miðvikudaginn 19. mars kl. 20:00. Mótsgjald fyrir hvora grein er 500 kr. fyrir 17 ára og yngri en 1.000 kr. fyrir þá sem eldri eru (F og H = 1.000 kr. eða 2.000 kr.) og greiðist við skráningu reikning Ullar:   Skíðagöngufélagið Ullur – Kennitala: 600707-0780 – Reikningsnúmer: 0117-26-6770 – Skýring: Reykjavíkurmót 2014.

Þótt mótið sé ætlað félögum tiltekinna skíðafélaga geta aðrir óskað eftir að keppa sem gestir. Þeir þurfa að skrá sig á sama hátt og félagar í Ulli og láta þess getið hvort þeir vilja kenna sig við eitthvert félag utan SKRR.

Dagskrá
Föstudagur 21. mars klukkan 18:30 –  Frjáls aðferð (F)
Laugardagur 22. mars kl. 11:00 –  Hefðbundin aðferð (H)

Flokkar og vegalengdir (báða dagana)
9 ára og yngri:  1 km
10-11 ára og 12-13 ára:  2,5 km
14-15 ára:  3,5 km
16-17 ára og 18 ára og eldri:  Karlar 7,5 km, konur 5 km

Verðlaun verða veitt í samræmi við lög SKRR, það er verðlaunað fyrir hvora keppnisgrein (F og H) óháð því hvort keppandi er úr Reykjavíkurliði eða ekki. Krýndur verður Reykjavíkurmeistari (keppendur úr Reykjavíkurliði) í hvorri keppnisgrein og fyrir samanlagðan árangur beggja greina.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur