Dagana 16. – 18. febrúar fer fram í Hlíðafjalli við Akureyri alþjóðlegt FIS-mót sem jafnframt er Bikarmót SKÍ. Drög að dagskrá og nánari upplýsingar má finna í mótsboði.
Mótið er fyrir 13 ára og eldri. Athugið að keppendur 17 ára og eldri þurfa að hafa FIS-leyfi til að taka þátt í FIS móti. Einnig, þá voru gerðar breytingar á aldri keppenda frá fyrra ári til samræmis við reglur FIS og nú miðast aldur keppenda tímabilið 2017/18 við aldur keppenda á árinu 2018.
Ullungar sem hafa hug á þátttöku, sendi póst á ullarpostur@gmail.com eða hafi sambandi við Málfríði s. 8946337 . Skráningar skulu berastí síðasta lagi 13. febrúar.