Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar verður haldinn í húsnæði ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, miðvikudaginn 24. maí 2022 kl. 20:00. Málefni sem félagar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum skulu hafa borist stjórn minnst viku fyrir aðalfund á netfangið stjornullar@gmail.com mál sem berast eftir að sá frestur er liðinn verða ekki tekin fyrir nema 2/3 fundarmanna samþykki það. Rétt til fundarsetu með öllum réttindum hafa félagar í Ulli.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari
3. Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana
4. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla
5. Lagabreytingar ef fyrir liggja
6. Stjórnarkjör:
a) kosinn formaður
b) kosnir fjórir aðalstjórnarmenn
c) kosnir tveir varamenn í stjórn
d) kosinn skoðunarmaður og annar til vara
7. Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar
8. Önnur mál
9. Fundarslit
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta starf félagsins. Stjórnin