Nú höfum við opnað fyrir skráningar á verslun.ullur.is á 6 skipta námskeið sem byrjar 28.janúar 2021. ATHUGIÐ að einn af þesum 6 tímum fer fram á fjarfundi þar sem farið er í smurningskennslu og búnað. Námskeiðin eru hugsuð fyrir bæði byrjendur sem og lengra komna sem vilja bæta tæknina eða rifja upp. Hverjum hóp verður skipt upp í smærri hópa þegar námskeiðið hefst. Hver kennslustund er um 55 mínútur.
Kennslan fer fram í Bláfjöllum á eftirfarandi dögum og tímasetningum (athugið þó að dagsetningar geta breyst vegna veðurs):
Hópur C
Fimmtudagur 28. janúar kl. 17:00
Laugardagur 30. janúar kl. 14.30
Mánudagur 1. febrúar kl. 17:00
Þriðjudagur 2. febrúar kl. 17:00
Fimmtudagur 4. febrúar kl. 17:00
Laugardagur 6. febrúar kl. 10:00
Hópur D
Fimmtudagur 28. janúar kl. 18:00
Laugardagur 30. janúar kl. 15.30
Mánudagur 1. febrúar kl. 18:00
Þriðjudagur 2. febrúar kl. 18:00
Fimmtudagur 4. febrúar kl. 18:00
Laugardagur 6. febrúar kl. 11:00
Hópur E
Fimmtudagur 28. janúar kl. 19:15
Laugardagur 30. janúar kl. 16.45
Mánudagur 1. febrúar kl. 19:15
Þriðjudagur 2. febrúar kl. 19:15
Fimmtudagur 4. febrúar kl. 19:15
Laugardagur 6. febrúar kl. 12:15
Námskeiðið er 6 skipti þar af er eitt skipti þar sem farið verður í búnað og smurningskennslu og verður það haldið einhvern daginn þegar vont veður verður.
Verð á námskeiðið er 12.000kr.
Félagsaðild í Ulli er skilyrt fyrir æfingar og námskeið sem eru fleiri en 1 skipti. Hér má skrá sig í félagið.
Brautargjald er ekki innifalið í námskeiðsgjöldum. Hægt er að greiða fyrir dagspassa á heimasíðu Bláfjalla en þar er einnig hægt að kaupa árskort.