Góðan daginn,
Nú höfum við opnað fyrir skráningar á verslun.ullur.is á 6 skipta námskeið sem byrjar 24.febrúar 2021. ATHUGIÐ að einn af þesum 6 tímum fer fram á fjarfundi þar sem farið er í smurningskennslu og búnað. Námskeiðin eru hugsuð fyrir bæði byrjendur sem og lengra komna sem vilja bæta tæknina eða rifja upp. Hverjum hóp verður skipt upp í smærri hópa þegar námskeiðið hefst. Hver kennslustund er um 55 mínútur.
Kennslan fer fram í Bláfjöllum á eftirfarandi dögum og tímasetningum (athugið þó að dagsetningar geta breyst vegna veðurs):
Hópur F
- Miðvikudagur 24. febrúar kl. 17:00
- Fimmtudagur 25. febrúar kl. 17:00
- Laugardagur 27. febrúar kl. 10:00
- Mánudagur 1. mars kl. 17:00
- Miðvikudagur 3. mars kl. 17:00
- Fimmtudagur 4. mars kl. 17:00
Hópur G
- Miðvikudagur 24. febrúar kl. 18:15
- Fimmtudagur 25. febrúar kl. 18:15
- Laugardagur 27. febrúar kl. 11:15
- Mánudagur 1. mars kl. 18:15
- Miðvikudagur 3. mars kl. 18:15
- Fimmtudagur 4. mars kl. 18:15
Hópur H
- Miðvikudagur 24. febrúar kl. 19:30
- Fimmtudagur 25. febrúar kl. 19:30
- Laugardagur 27. febrúar kl. 12:30
- Mánudagur 1. mars kl. 19:30
- Miðvikudagur 3. mars kl. 19:30
- Fimmtudagur 4. mars kl. 19:30
Námskeiðið er 6 skipti, þar af er eitt skipti þar sem farið verður í búnað og smurningskennslu og verður það haldið einhvern daginn þegar vont veður verður.
Verð á námskeiðið er 12.000kr.
Félagsaðild í Ulli er skilyrt fyrir námskeiðið. Hér má skrá sig í félagið.
Brautargjald er ekki innifalið í námskeiðsgjöldum. Hægt er að greiða fyrir dagspassa á heimasíðu Bláfjalla en þar er einnig hægt að kaupa árskort.