Hjólaskíðamót sunnudaginn 8. október

Hið árlega hjólaskíðamót Ullar verður haldið sunnudaginn 8. október. Mótið, sem er jafnframt fyrsti viðburður félagsins á nýjum skíðavetri, fer fram í Fossvogsdal en mark og start er í nágrenni Víkings og er merkt inn á kortið hér fyrir neðan. Ræst verður hjá yngri flokkum kl 10 og hjá 12 ára og eldri kl 10:30.

Dagskrá og flokkar eru eftirfarandi:

Ræsing kl. 10:00
11 ára og yngri eru á línuskautum
9 ára og yngri – fara 1 km (út frá marki eftir stígnum og til baka  í mark)
10-11 ára – fara 2 km (út frá marki eftir stígnum og til baka  í mark)

Þrautabraut fyrir þá yngstu við rásmark

Ræsing kl 10:30+  (eða um leið og allir eru komnir í mark og tímataka er klár)
12-16 ára stúlkur og piltar – Hjólaskíði, hefðbundin aðferð 5 km
12-16 ára stúlkur og piltar – Línuskautar, frjáls aðferð með stafi 5 km
17 ára og eldri konur og karlar – Hjólaskíði, hefðbundin aðferð 10 km

Þátttökugjald fyrir 12 ára og eldri er 1000 kr., 500kr fyrir yngri en 12 ára, ókeypis í þrautabraut. Hægt er að skrá sig hér, en einnig má skrá sig á staðnum. Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir fram

Þátttökugjald greiðist á staðnum (ekki tekið við kortum). Nánari upplýsingar veita Einar Óla í síma 696 3699 og Málfríður í síma 894 6337.

Kort af 5km hring má sjá hér fyrir neðan (smella á mynd til að sjá stærri). Þar má einni sjá hvar startið er.

 

 

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur