FIS/Bikarmót á Ísafirði 17. – 19. febrúar 2023

Dagana 17. -19. febrúar næstkomandi fer fram á Ísafirði alþjóðlegt FIS-mót sem er jafnframt Bikarmót SKÍ.

Mótið er fyrir 15 ára og eldri. Athugið að keppendur 17 ára og eldri þurfa að hafa FIS-leyfi til að taka þátt í FIS-móti. Til að fá nánari upplýsinar um FIS-leyfi, má senda póst á ullarpostur@gmail.com.

Skráningar fara fram í gegnum félögin svo þeir Ullungar sem hyggja á þátttöku þurfa að senda póst á ullarpostur@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 14. febrúar 2023

Mótsboð með dagskrá og nánari upplýsingum má finna hér

Aldursflokkar veturinn 2022/2023
13-14 ára – árg. 2009 og 2010
15-16 ára – árg. 2007 og 2008
17-18 ára – árg. 2005 og 2006
19-20 ára – árg. 2003 og 2004
Fullorðins flokkur eru allir 17 ára og eldri – árg. 2006 og eldri

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur