Dagana 15. -17. janúar næstkomandi fer fram á Akureyri alþjóðlegt FIS-mót sem er jafnframt Bikarmót SKÍ.
Mótið er fyrir 15 ára og eldri. Athugið að keppendur 17 ára og eldri þurfa að hafa FIS-leyfi til að taka þátt í FIS-móti. Til að fá nánari upplýsinar um FIS-leyfi, má senda póst á ullarpostur@gmail.com
Skráningar fara fram í gegnum félögin svo þeir Ullungar sem hyggja á þátttöku þurfa að senda póst á ullarpostur@gmail.com í síðasta lagi miðvikudaginn 13. janúar 2021 kl 10:00.
Mótsboð með dagskrá og nánari upplýsingum má finna hér
ATH – Dagskrá og mótahald getur breyst með stuttum fyrirvara. Á miðvikudaginn taka nýjar reglur gildi sem heimila keppni aftur og ennþá eitthvað sem er óljóst tengt því. Á næstu tveimur dögum ættu allar reglur að vera komnar á hreint og hægt að útfæra mótahaldið endanlega í kjölfarið.