Byrjendanámskeið laugardaginn 20. janúar 2018

Laugardaginn 20. janúar stendur Ullur fyrir námskeiðum í skíðagöngu, í Bláfjöllum, fyrir byrjendur og aðra sem vilja ná svolítið betri tökum á göngutækninni. Námskeiðin hefjast kl. 10:00 og kl. 12:00 og standa í rúma klukkustund. Smelltu hér til að skoða staðsetningu Ullarskálans í Bláfjöllum, þar sem æfingarnar fara fram.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda er á hvort námskeið og verður leiðbeinandi á hverja 7-8. Námskeiðið kostar 3.000 kr., þeir sem þurfa að fá lánaðan búnað greiða 2.000 kr. að auki  en ekki má treysta því að fleiri en 18 geti fengið lánaðan búnað á hvoru námskeiði.

Skráning og greiðslur

Nauðsynlegt er að fólk skrái sig á námskeiðin og má gera það með því að fara inn á skráningar- og greiðslusíðu félagsins sem er verslun.ullur.is. Skráningar taka gildi þegar greiðsla skráningargjalds hefur farið fram.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur