Laugardaginn 10. mars stendur Ullur fyrir námskeiði í skíðagöngu, í Bláfjöllum, fyrir byrjendur og aðra sem vilja ná svolítið betri tökum á göngutækninni. Námskeiðið hefst kl. 12:30 og stendur í rúma klukkustund. Smelltu hér til að skoða staðsetningu Ullarskálans í Bláfjöllum, þar sem æfingin fer fram.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda er á námskeiðið og verður leiðbeinandi á hverja 7-8. Námskeiðið kostar 3.000 kr., þeir sem þurfa að fá lánaðan búnað greiða 2.000 kr. að auki en ekki má treysta því að fleiri en 18 geti fengið lánaðan búnað á námskeiðinu.
Skráning og greiðslur
Nauðsynlegt er að fólk skrái sig á námskeiðið og má gera það með því að fara inn á skráningar- og greiðslusíðu félagsins sem er verslun.ullur.is. Skráningar taka gildi þegar greiðsla skráningargjalds hefur farið fram.
Vakin er athygli á því að eins og á öðrum skíðasvæðum þarf að kaupa skíðakort sem gildir í brautirnar í Bláfjöllum en það er ekki innifalið í námskeiðum sem haldin eru á svæðinu.
Smelltu hér til að skoða gjaldskrá skíðasvæðisins í Bláfjöllum, en dagskort kostar 980 kr. Hægt er að greiða fyrir dagskort með korti í skála Ullar.