Skíðagöngunámskeið fyrir almenning
Laugardaginn 1. apríl stendur Ullur fyrir skíðagöngunámskeiðum í Bláfjöllum, fyrir byrjendur og aðra sem vilja ná svolítið betri tökum á göngutækninni. Námskeiðin hefjast kl. 11:00 og standa í rúma klukkustund.
Um 40 manns komast að á námskeiðin og verður leiðbeinandi á hverja 7-8.
Námskeiðið kostar 3.000 kr., þeir sem þurfa að fá lánaðan búnað greiða 2.000 kr. að auki en ekki má treysta því að fleiri en 15 geti fengið lánaðan búnað á hvoru námskeiði.
Skráning og greiðslur
Nauðsynlegt er að fólk skrái sig á námskeiðin og má gera það með því að smella á myndina efst í dálkinum hér til hægri eða með því að smella hér og fylla út eyðublað sem þá birtist. Skráningar taka gildi þegar greiðsla skráningargjalds hefur farið fram.
Greiðsluupplýsingar:
Skíðagöngufélagið Ullur
Kennitala: 600707-0780
Reikningsnúmer: 0117-26-6770
Skýring: BYR1APR 2017
Kvittun sendist til: ullarpostur@gmail.com
Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvaða þátttakanda er verið að greiða.
Vakin er athygli á því að eins og á öðrum skíðasvæðum þarf að kaupa skíðakort sem gildir í brautirnar í Bláfjöllum en það er ekki innifalið í námskeiðum sem haldin eru á svæðinu.
Smelltu hér til að skoða gjaldskrá skíðasvæðisins í Bláfjöllum, en dagskort kostar 950 kr. Hægt er að greiða fyrir dagskort með korti í skála Ullar.
Smelltu hér til að skoða staðsetningu Ullarskálans í Bláfjöllum, þar sem æfingarnar fara fram.