Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í
samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 15. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í
Reykjavík í stofu V101. Margir áhugaverðir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksíþróttir.
Fyrirlestrarnir fara bæði fram á íslensku og ensku. Ráðstefnustjóri verður Sigurbjörn Árni Arngrímsson.
Hér má lesa meira um ráðstefnuna: Afreksþjálfun – ráðstefna 15. janúar 2015