Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar 2013

Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar verður haldinn í sal E í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (skrifstofubygging), mánudaginn 29. apríl 2013 kl. 20.

Málefni sem félagar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum skulu hafa borist stjórn minnst viku fyrir aðalfund. Mál sem berast eftir að sá frestur er liðinn verða ekki tekin fyrir nema 2/3 fundarmanna samþykki það. Rétt til fundarsetu með öllum réttindum hafa skuldlausir félagar.

Dagsskrá aðalfundar:

1.   Fundarsetning
2.   Kosnir fundarstjóri og fundarritari
3.   Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana
4.   Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla
5.   Skýrslur nefnda
6.   Fjárhagsáætlun næsta starfsárs
7.   Kosning nefnda
8.   Lagabreytingar ef fyrir liggja
9.   Stjórnarkjör:
a)     kosinn formaður
b)     kosnir fjórir aðalstjórnarmenn
c)      kosnir tveir varamenn í stjórn
d)     kosinn skoðunarmaður og annar til vara
10.   Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar
11.   Önnur mál
12.   Fundarslit

Vakin er athygli á því að á aðalfundinum hafa þeir einir rétt til fundarsetu með öllum réttindum sem eru skuldlausir við félagið. Árgjaldið fyrir starfsveturinn 2012-2013 er 3000 kr. Ef einhver er í vafa um hvort hann hafi greitt það er honum bent á að hafa samband við gjaldkera: ari_wendel@yahoo.com, eða gera upp á fundarstað. Félags­menn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta starf félagsins, þetta er ykkar félag.

Stjórnin.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur