Laugardaginn 4. mars stendur Ullur fyrir námskeiðum í skíðagöngu í Bláfjöllum, fyrir byrjendur og aðra sem vilja ná svolítið betri tökum á göngutækninni. Námskeiðin hefjast kl. 10:30 og kl. 13:00 og standa í rúma klukkustund. Smelltu hér til að skoða staðsetningu Ullarskálans í Bláfjöllum, þar sem æfingarnar fara fram.
Um 40 manns komast að á hvort námskeið og verður leiðbeinandi á hverja 7-8. Námskeiðið kostar 3.000 kr., þeir sem þurfa að fá lánaðan búnað greiða 2.000 kr. að auki en ekki má treysta því að fleiri en 15 geti fengið lánaðan búnað á hvoru námskeiði.
Skráning og greiðslur
Nauðsynlegt er að fólk skrái sig á námskeiðin og má gera það með því að smella á myndirnar efst í dálkinum hér til hægri og fylla út eyðublað sem þá birtist. Skráningar taka gildi þegar greiðsla skráningargjalds hefur farið fram. Athugið, ef leigja á skíði þarf að greiða fyrir skíðaleiguna um leið og greitt er fyrir námskeiðið.
Greiðsluupplýsingar:
Skíðagöngufélagið Ullur
Kennitala: 600707-0780
Reikningsnúmer: 0117-26-6770
Skýring: BYR4MAR 2017
Kvittun sendist til: ullarpostur@gmail.com
Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvaða þátttakanda er verið að greiða eða sendið póst á ullarpostur@gmail.com þar sem kemur fram hver borgar fyrir hvern.
Vakin er athygli á því að eins og á öðrum skíðasvæðum þarf að kaupa skíðakort sem gildir í brautirnar í Bláfjöllum en það er ekki innifalið í námskeiðum sem haldin eru á svæðinu.
Smelltu hér til að skoða gjaldskrá skíðasvæðisins í Bláfjöllum, en dagskort kostar 950 kr. Hægt er að greiða fyrir dagskort með korti í skála Ullar.