
Forsvarsmönnum skíðafélaga er bent á að þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir kl 20:00 24. febrúar 2016, sjá nánar í mótsboði.
Auk bikarmóts, verður á laugardeginum gengin Fjarðargangan sem er jafnframt fyrsta gangan í Íslandsgöngunni á þessum vetri. Á föstudeginum og sunnudeginum verða einnig barnamót svo það má með sanni segja að um sannkallaða skíðagönguveislu sé að ræða enda eitthvað í boði fyrir alla. Allar nánari upplýsingar má finna hér.