Vinnuhelgi í Bláfjöllum 13. – 14. september

Kæru félagar

Helgina 13. – 14. september, milli 10 og 16 verður vinnuhelgi í Bláfjöllum. Ýmis verkefni standa fyrir dyrum, bæði stór og smá, og værum við mjög þakklát ef að sem flestir sjá sér fært að koma og taka þátt í að betrumbæta aðstöðuna í Bláfjöllum svo að allt verði sem best þegar að fyrsti snjórinn kemur seinna í haust og í vetur.

Öll hjálp vel þegin, hvort sem að komist er báða dagana, eða bara hluta úr degi annan daginn. Má gjarnan taka með sér verkfæri eins og stiga, hrífu, skóflu, járnkarl.

Veitingar verða í boði.

Sjáumst vonandi sem allra flest!

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur