Innanfélagsmót verður haldið í Bláfjöllum laugardaginn 29.janúar kl. 11:00. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
a. börn 8 ára og yngri stúlkur og drengir – 1 km
b. 9-10 ára stúlkur og drengir – 1 km
c. 11-12 ára stúlkur og drengir – 2 km
d. 13-16 ára stúlkur og drengir – 5 km
e. 17 ára og eldri konur og karlar – 10 km
Fjölmennum í okkar fyrsta skíðagöngumót á árinu og setjum skemmtilegan svip á daginn með góðri þátttöku. Skráning fer fram að Þóroddsstöðum (húsið okkar í Bláfjöllum) frá kl 10. Heitt kakó í göngulok og verðlaun veitt.