Myndir úr Bláfjallagöngunni?

Ég hafði hugsað mér að mæta með myndavél í Bláfjallagönguna og reyna að sjá til þess að sem flestir keppendur gætu fundið mynd(ir) af sér á myndasíðu Ullarvefsins eftir keppnina (sjá t.d. hér um gönguna 2009). En nú vill svo illa til að um þessa helgi er ég bundinn annars staðar þannig að ég kæmist ekki upp í Bláfjöll fyrr en um það leyti sem síðasti keppandi kæmi í mark. Ég vil því spyrja hvort einhver viti um einhvern sem væri til í að taka þetta hlutverk að sér og taka myndir sem við mættum birta í myndasafninu. Og að sjálfsögðu verða allar góðar myndir vel þegnar þótt ekki verði um að ræða fullkomnar myndaseríur!

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur