Hjólaskíðanámskeið – Vor 2023 — FULLT

ATH!! FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ!! Hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda póst á ullarpostur@gmail.com

—————————————————————-

Skíðagöngufélagið Ullur í samvinnu við Kristrúnu Guðnadóttur standa fyrir hjólaskíðanámskeiði fyrir fullorðna í vor/sumar.

Námskeiðið verður fjögur skipti, fyrst 23. og 25.maí og svo 6. og 8.júní kl. 17.30. Æfingarnar verða í Elliðaárdalnum, hist fyrir framan Hitt húsið. En mögulega verða einhver skipti færð eitthvað annað á höfuðborgarsvæðinu.

Ferða og útivistarverslunin Everest bíður þeim sem ekki eiga hjólaskíði en langar til að prófa að fá lánuð hjólaskíði á meðan á námskeiðinu stendur.

Markmiðið er að þetta námskeið marki upphafið af æfingahópi Ullar sem muni æfa saman eftir leiðsögn Kristrúnar einu sinni í viku í haust og vetur. Verð fyrir þetta námskeið er 10.000kr fyrir meðlimi í Ulli, en 17.000kr. fyrir þá sem ekki eru í Ulli. Hægt er að skrá sig í félagið hér.

Nánari upplýsingar veitir Kristrún í síma 7794341 eða netfanginu kristrungud@gmail.com. Námskeiðið er hluti af fjáröflun barna og unglingastarfs félagsins og er því verið að styrkja barna og unglingastarfið með því að taka þátt.

Skráning á námskeiðið er á verslun.ullur.is

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur