Hjólaskíðamót Ullar 21. september

Hjólaskíðamót Ullar fer fram sunnudaginn 21. september næstkomandi klukkan 10.00. Mótið verður haldið í Fossvogsdalnum með starti og marki rétt vestan við Víkingsheimilið. Í boði verða fleiri en ein vegalengd og hentar brautin öllum, hvort sem er byrjendum eða lengra komnum. Eins og undanfarin ár verða glæsileg útdráttarverðlaun í boði.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og vegalengdum:
– 9 ára og yngri (fædd 2016 og yngri) 2 km, (1x minni hringur)
– 10 – 12 ára (fædd 2013-2015) 4 km, (2x minni hringur)
– 12 ára og yngri mega vera á hvort sem er línuskautum eða hjólaskíðum og er frjáls aðferð leyfileg
– 13 – 15 ára stúlkur og piltar (fædd 2010-2012) 7 km (1x stærri hringur + 1x minni hringur). Hefðbundin aðferð.
– 16 ára og eldri konur og karlar (fædd 2009 og eldri). Val um 5km (1x stærri hringur) eða 10 km (2x stærri hringur). Hefðbundin aðferð.

Athugið að 13 ára og eldri mega einungis keppa á hjólaskíðum með stoppara (ekki á skautahjólaskíðum).

Hjálmaskylda er í keppninni.

Myndir af brautum má sjá hér að neðan. Brautarverðir verða á helstu stöðum en biðjum þátttakendur þó að vera búin að skoða kort og kynna sér brautina fyrir keppni.
Þegar að farið er tilbaka í stærri hringnum (til austurs) er beygt upp til hægri rétt við Fossvogsskóla.

Þátttökugjald:
15 ára og yngri fá frítt
16 ára og eldri borga 1.000kr

Skráning 16 ára og eldri fer fram hér. Skráningar 15 ára og yngri skulu berast á ullarpostur at gmail.com. Senda skal nafn, fæðingarár, félag. Þau sem hyggjast keppa á línuskautum (12 og yngri) taki það fram í póstinum.

Skráningarfrestur er laugardagurinn 20. september kl 20:00

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Styttri hringur 2 km (smella á mynd til að fá stærri)
Lengri hringur 5 km (smella á mynd til að fá stærri)

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur