Flottar göngur hjá Fróða í Beitostølen

Fróði Hymer keppir í Beitostölen

Um helgina tók Ullungurinn Fróði Hymer þátt í opnunarmóti norska skíðasambandsins í Beitostølen – einu sterkasta móti tímabilsins þar sem fremstu Norðmenn og fjöldi erlendra keppenda mæta til leiks.

Fróði keppti bæði í 10 km hefðbundinni göngu á laugardag og 10 km skautagöngu á sunnudag. Í hefðbundnu göngunni endaði hann í 125. sæti af 177 keppendum og hlaut um 150 FIS-stig. „Ég hefði viljað gera betur, leið vel framan af en magavandamál setti strik í reikninginn,“ segir Fróði.

Á sunnudeginum gekk allt upp – skíðin voru frábær og líkaminn góður. Fróði endaði í 84. sæti af 170 keppendum, aðeins 2:27 mínútum á eftir sigurvegaranum. Til gamans má nefna að hann var um 45 sekúndum á eftir Íslandsvininum Thomas Malony og á undan franska landsliðsmanninum Jules Chappaz, sem hefur náð nokkrum sinnum á pall í heimsbikarnum undanfarin ár. Fyrir gönguna fékk Fróði 115 FIS-stig sem eru hans næst bestu á ferlinum!

Fróði náði einnig inn á topp 20 í U23 flokki, sem er frábær árangur og góð byrjun á tímabilinu.

Skíðagöngufélagið Ullur sendir Fróða baráttukveðjur inn í veturinn!

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur