Æfingar byrjaðar eftir sumarfrí

Þá er æfingatímabilið byrjað hjá öllum æfingahópum hjá Ulli en þrír æfingahópar tóku æfingu saman í morgun í hlíðum Úllfarsfells. Þangað mættu æfingahópar 9-11 ára, 12+ unglinga og æfingahópur fullorðinna í rjómablíðu og tóku mis margar ferðir af stafahlaupi frá bílastæðinu uppá topp, undir handleiðslu þjálfara.

Þjálfararnir í dag hjá þessum hópum voru ekki af verri endanum enda öll núverandi eða fyrrum landsliðsfólk í skíðagöngu. Ullungar ættu því að verða vel undirbúnir þegar snjóa fer í fjöllum.

Hægt er að kynna sér barna- og unglingastarfið hér á heimasíðu félagsins en fullt er orðið í æfingahóp fullorðinna og ekki tekið við fleiri skráningum í bili.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur