Aðalfundur – Baldur nýr formaður

Einar Óla og Ari Wendel heiðraðir

Aðalfundur Skíðagöngufélagsins Ullar fór fram í gær, 26. maí 2025. Í skýrslu stjórnar kom fram að starfið hafi gengið brösuglega vegna tíðarfarsins sl. Vetur, sem hafði mest áhrif á námskeiðs- og mótahald. Ekki tókst að halda bikarmót þar sem FIS brautin komst ekki í notkun vegna snjóleysis, Bláfjallagöngunni var frestað og Skíðagöngudagurinn féll niður.

Ársreikningur var lagður fram og samþykktur. Félagið stendur vel eftir miklar framkvæmdir og er skuldlaust.

Ný stjórn og formaður var kjörin á fundinum. Baldur Helgi Ingvarsson er nýr formaður og tekur við af Trausta Árnasyni sem gaf ekki kost á sér sökum mikillar fjarveru norðan heiða vegna atvinnu sinnar. Aðrir sem voru kjörnir í stjórn voru Íris Marelsdóttir og Bergþóra Baldursdóttir, sem sátu í fyrri stjórn. Eiríkur Sigurðsson og Guðmunda Elíasdóttir, koma nú inn sem aðalmenn í stjórn en voru áður varamenn. Þeirra sæti sem varamenn í stjórn taka Óskar Jakobsson og Jón Eðvald Halldórsson.

Ari Wendel gaf ekki kost á sér til frekari stjórnarstarfa en hann hefur setið í stjórn Ullar frá árinu 2011 og þar á undan sem skoðunarmaður reikninga frá stofnun félagsins, og verið kjölfesta félagsins frá upphafi. Voru Ara þökkuð góð störf við uppbyggingu félagsins og íþróttarinnar á Höfuðborgarsvæðinu. Ari hefur verið ötull talsmaður og mikill framkvæmda- og hugsjónarmaður þegar kemur að aðstöðumálum í Bláfjöllum og í Heiðmörk. Eins var Einar Ólafsson heiðraður á aðalfundinum og þökkuð góð störf, enda sannur eldhugi fyrir íþróttina og félagið, sem mun nú hverfa úr starfinu um skeið vegna búferlaflutninga.

Tvær lagabreytingar voru samþykktar sem snúa að því að Skíðagöngufélagið Ullur verði skilgreint sem almannaheillafélag, skv. tilmælum ÍSÍ.

Góð umræða fór fram um Íslandsgöngurnar og var samþykkt ályktun frá Agli Guðmundssyni um þróun hennar með það að markmiði að skerpa á ákveðnum atriðum til að einfalda fyrirkomulagið og til að fjölga þátttakendum. Verður þessi vinna Egils tekin inn í nefnd sem SKÍ hefur stofnað um Íslandsgönguna til auka vegsemd hennar. Ullungar gengu samtals 2009 km í Íslandsgöngum á þessu tímabil og er vert að minnast á árangur Ásdísar Káradóttur og Brynhildar Ingvarsdóttur sem gengu allar þær göngur sem voru haldnar og gengu líka flesta kílómetrana undir merkjum Ullar.

Aðstaðan Í Bláfjöllum hefur tekið frekari framförum með öflugri skálavakt og umbreytingu Þóroddsstaða í skíðaleigu og smurningsaðstöðu.

Fram kom að það er áskorun að halda úti æfingum og hvatningu fyrir börn og unglinga við þær aðstæður sem við búum og þegar skíðadagarnir eru fáir eins og sl. vetur, en engu að síður þá náðu Ullungar góðum árangri í bikarmótum og skíðalandsmóti. Þar má helst nefna fjóra bikarmeistaratitla, þeirra Maríu Kristínar Ólafsdóttur í kvennaflokki og 17-19 ára flokki kvenna, Sigríðar Dóru Guðmundsdóttur í 19-20 ára flokki kvenna og Elías Mar Friðrikssonar í 15-16 ára flokki pilta. Íslandsmeistaratitlarnir voru 11 talsins á Skíðalandsmóti, þar sem Hjalti Böðvarsson og Elías Mar urðu þrefaldir meistarar í sínum flokkum, Kristrún Guðnadóttir í sprettgöngu kvenna og María Kristín tvöfaldur Íslandsmeistari í kvennaflokki og þrefaldur í 19-20 ára flokki.

Skýrslu stjórnar má nálgast hér undir

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur