Námskeið!

Undanfarin ár hefur Skíðagöngufélagið Ullur staðið fyrir byrjendanámskeiðum. Ákveðið
hefur verið að hafa þetta með öðru sniði í ár og í stað skipulagðra námskeiða þá viljum
við bjóða hópum (vinnustaðir, félög, fjölskyldur, vinahópar) að hafa samband við okkur
og við reynum að sérsníða námskeið að óskum hvers og eins.

Verð námskeiða eru eftirfarandi:
Stærð hópa:
8 eða færri: 25.000 fyrir eitt skipti, 1 leiðbeinandi
9-16 einstaklingar: 45.000kr fyrir eitt skipti, 2 leiðbeinendur
17-24 eintstaklingar: 65.000kr fyrir eitt skipti, 3 leiðbenendur
25-32: 85.000 fyrir eitt skipti, 4 leiðbeinendur
Hvert skipti er 1 klukkustund og verða námskeiðin haldin við Ýdali, skála
Skíðagöngufélagins Ullar í Bláfjöllum.

Fyrir þá sem að ekki eiga búnað þá er mögulegt að leigja allan búnað hjá félaginu.
Verðskrá fyrir leigu er eftirfarandi:
Skíði: 2500kr Skór: 2500kr Stafir: 1000kr Eitt sett 5000kr
Hver og einn þátttakandi þarf að borga fyrir aðgang að skíðasvæðinu – sjá hér

Hvetjum alla til að koma og prófa þessa frábæru íþrótt og læra undirstöðuatriðin hjá
okkar frábæru leiðbeinendum!

Hafið endilega samband við ullarpostur@gmail.com til að bóka námskeið hjá okkur.

Gott væri að fram komi fjöldi í hóp, ósk um dagsetningar og tímasetningar og nafn og
símanúmer hjá tengilið hóps.

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur