Byrjenda- og framhaldsnámskeið á nýju ári

Nú fer vonandi að styttast í að snjórinn mæti almennilega á svæðið og hægt verði að spenna á sig gönguskíðin. Það er því ekki seinna vænna en að fara að huga að námskeiðum vetrarins.

Eins og undanfarna vetur verða í boði 5 skipta byrjendanámskeið og hefjast fyrstu námskeið í janúar. Sjá dagsetningar hér að neðan. Þessi námskeið eru nú komin í sölu á vefverslun Ullar, og einnig er komið í sölu 3. skipta framhaldsnámskeið sem að hefst 1. febrúar 2025.

Takmarkaður fjöldi kemst að á hvert námskeið og við hvetjum því alla til að skrá sig sem fyrst!

Í vetur verður einnig boðið upp á 3 skipta námskeið í skautatækni. Dagsetningar fyrir þetta námskeið verða auglýstar á næstunni.

Verð á 5 skipta námskeiðinu er 13..500 kr á mann og verð á 3 skipta framhaldsnámskeiðinu er 8.500 kr á mann.

5 skipta byrjendanámskeið í janúar:

Laugardagur 11.janúar; hópur A kl. 10.00, hópur B kl. 11.30
Mánudagur 13. janúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30
Fimmtudagur 16. janúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30
Mánudagur 20. janúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30
Fimmtudagur 23. janúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30

5 skipta byrjendanámskeið í febrúar:

Laugardagur 8. febrúar; hópur A kl. 10.00, hópur B kl. 11.30
Mánudagur 10. febrúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30
Fimmtudagur 13. febrúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30
Laugardagur 15. febrúar; hópur A kl. 10.00, hópur B kl. 11.30
Mánudagur 17. febrúar; hópur A kl 18.00, hópur B kl 19.30

3 skipta framhaldsnámskeið í febrúar:

Laugardaginn 1.febrúar kl 11
Mánudaginn 3. febrúar kl 18
Fimmtudaginn 6. febrúar kl 18

Deila

Facebook
Twitter

Nýlegar færslur